

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Seltjarnarnes
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ óskar eftir að ráða sérfræðing í heimilislækningum til starfa. Við leitum að lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu heilbrigðisstarfsfólks í lærdómsríku starfsumhverfi.
Á heilsugæslunni Seltjarnarnesi og Vesturbæ ríkir frábær starfsandi þar sem áhersla er lögð á góða samvinnu, starfsánægju og vellíðan í starfi.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Lægra starfshlutfall kæmi einnig til greina ef ekki fæst sérfræðingur í fullt starf og hvetjum við því alla lækna sem hafa áhuga að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
-
Íslenskt lækningaleyfi
-
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
-
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
-
Reynsla af kennslu er æskileg
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
-
Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Íslenskukunnátta skilyrði
-
Hreint sakavottorð
Íslenska
Enska


















