
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Sérfræðingur notendaaðstoð - deild rafrænnar þjónustu HH
Ert þú að leita að spennandi starfi í tæknimálum?
Við erum að leita að tæknisinnuðum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund í tímabundið starf í deild rafrænnar þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Deildin heyrir undir svið fjármála og rekstrar sem staðsett er í Álfabakka 16. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirlit með vél- og hugbúnaði heilsugæslunnar
- Stofnun og breytingar á notendum tölvukerfis HH, skipulagning og vandamálagreining
- Aðstoð við notendur
- Samskipti við sérfræðinga innan og utan stofnunar vegna tölvumála
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þekking á Microsoft notendahugbúnaði skilyrði
- Þekking á Linux netþjónum kostur
- Reynsla af rekstri tölvubúnaðar kostur
- Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugafar
- Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð
- Brennandi áhugi á tölvum og tækni
- Mjög góð færni í íslensku og ensku
Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur4. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSkipulagVinna undir álagiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (8)

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi- Heilsugæslan Garðabæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Miðbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sambærileg störf (11)

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Notendaþjónusta - Internal support
Icelandair

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Afgreiðslu- og móttökufulltrúi - fullt starf
Verkalýðsfélagið Hlíf

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution

Ert þú tækninörd með þjónustuhjarta?
Sýn

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Tæknimaður í afgreiðslulausnum
Wise lausnir ehf.

Partýfulltrúi - Fullt starf - Helgarstarf
Rent-A-Party

Leitum að kerfisstjóra
TACTICA