Thor Ice Chilling Solution
Thor Ice Chilling Solution

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta

(Field Service & Commissioning Technician)

Viltu vinna með hátæknibúnað og takast á við fjölbreyttar tæknilegar áskoranir um allan heim?

Thor Ice Chilling Solutions leitar að öflugum og úrræðagóðum tæknimanni til að sinna uppsetningu, gangsetningu og þjónustu á hátæknilausnum fyrirtækisins hjá viðskiptavinum erlendis.

Við leitum að einstaklingi með góða tæknilega reynslu, sjálfstæð vinnubrögð og getu til að leysa fjölbreytt verkefni þar sem vélbúnaður, rafmagn og sjálfvirkni mætast.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á tækifæri til að vinna með sérhæfðan búnað, taka þátt í þróun tæknilausna og starfa í alþjóðlegu umhverfi. Stærstur hluti verkefna Thor Ice er erlendis og starfinu fylgja því töluverð ferðalög.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning og gangsetning á kerfum og tæknilausnum Thor Ice hjá viðskiptavinum erlendis. 
  • Þjónusta, viðhald, bilanagreining og tæknileg úrlausn verkefna.
  • Vinna við vélbúnað, rafbúnað, skynjara, stýringar og sjálfvirknikerfi.
  • Samstarf og samskipti við viðskiptavini, verktaka og tækniteymi á uppsetningarstöðum.
  • Prófanir, stillingar og afkastabestun búnaðar.
  • Þátttaka í samsetningu, prófunum og þróun búnaðar fyrirtækisins. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða góð verkleg reynsla á sviði vélstjórnar, vélvirkjunar, rafvirkjunar, vélfræði, sjálfvirkni eða sambærilegra tæknigreina.
  • Reynsla af uppsetningu, viðhaldi eða þjónustu á iðnaðar- og vélbúnaði.
  • Góður skilningur á vélrænum og rafmagnstengdum kerfum.
  • Hæfni til að lesa og vinna eftir tækniteikningum og rafmagnsteikningum.
  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Góð samskiptahæfni og hæfileiki til að vinna með fólki úr ólíkum menningarheimum. 
  • Sveigjanleiki og vilji til reglulegra ferðalaga erlendis. 

Það er kostur að hafa

  • Reynslu af kæli- og varmaflutningskerfum.
  • Þekkingu á PLC-stýringum, iðnaðarsjálfvirkni eða hugbúnaðartengdri bilanagreiningu.
  • Reynslu af loftstýringum, skynjurum og iðnaðarrafbúnaði.
  • Reynslu af gangsetningu véla eða iðnaðarkerfa hjá erlendum viðskiptavinum.
  • Þekkingu á búnaði og ferlum í matvælaiðnaði. 
Um Thor Ice Chilling Solutions

Thor Ice er íslenskt hátæknifyrirtæki sem hannar, þróar og framleiðir nýstárlegar ískrapakælilausnir fyrir alþjóðlegan matvælaiðnað, með sérstaka áherslu á alifuglavinnslu.

Lausnir fyrirtækisins sameina vélbúnað, kælitækni, sjálfvirkni og hugbúnað og stuðla að bættri framleiðni, auknu matvælaöryggi og minni sóun. Thor Ice starfar á alþjóðlegum markaði og vinnur með stórum matvælaframleiðendum víða um heim.

Við bjóðum
  • Fjölbreytt og krefjandi starf hjá íslensku hátæknifyrirtæki með alþjóðlega starfsemi.
  • Tækifæri til að vinna með sérhæfðan vélbúnað, kælitækni og sjálfvirknilausnir.
  • Mikil tækifæri til faglegrar þróunar og aukinnar ábyrgðar.
  • Alþjóðlegt starfsumhverfi og fjölbreytt verkefni hjá viðskiptavinum víða um heim.
  • Öflugt samstarf við tæknifólk og tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun og útfærslu lausna fyrirtækisins. 
Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hafnarbraut 25, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar