Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf

Heilsugæslan Hvammi í Kópavogi leitar að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi í 80% tímabundið starf í eitt ár.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði einstaklinga.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánari samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Hvammi starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.

Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
  • Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
  • Einstaklings- og hópmeðferð
  • Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
  • Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
  • Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi útgefið af embætti landlæknis til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði 
  • 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg 
  • Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum 
  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu 
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi 
  • Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu 
  • Reynsla af starfi með túlki 
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði 
  • Góð enskukunnátta æskileg  
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur29. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SálfræðingurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar