Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi

Heilsugæsla Mosfellsumdæmis leitar að ljósmóður sem er tilbúin að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Ef þú telur þig vera manneskjuna í starfið, hvetjum við þig eindregið til að senda inn umsókn. 

Um er að ræða ótímabundið 50% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða eftir nánara samkomulagi. 

Heilsugæslan er fjölskylduvænn vinnustaður og góð samvinna er á milli starfstétta. Á stöðinni starfa sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, sálfræðingum, sjúkraliða, sjúkraþjálfara og riturum.  

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið ljósmóður er mæðravernd og leghálsskimanir. 

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði 
  • Starfsleyfi sem ljósmóðir 
  • Reynsla af leghálsskimunum kostur 
  • Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur 
  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur 
  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá 
  • Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf 
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði 
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur3. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sunnukriki 3, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar