

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf
Heilsugæslan Hvammi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% tímabundið starf í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánari samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem eru tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Hvammi er staðsett rétt við Smáralindina, með gott aðgengi og stutt í helstu stofnbrautir. Góð samvinna er á milli fagstétta og öflug skemmtinefnd að störfum.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Megin starfssvið mun vera opin móttaka og heilsuvernd aldraða ásamt því að sinna öðrum verkefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk hverju sinni.
Opin móttaka skiptist í bókaða móttöku og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í móttöku greina hjúkrunarfræðingar margvíslegustu þarfir/vandamál skjólstæðinga, veita viðeigandi meðferð og/eða koma málum í góðan farveg.
Heilsuvernd aldraða felur í sér mat á heilsu aldraðra skjólstæðinga og þörf þeirra á þjónustu til að viðhalda sjálfsbjargargetu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning við breytingar og raunhæfa markmiðasetningu.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Reynsla af fjölskylduhjúkrun kostur
- Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska


















