Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi

Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í ígræðsluteymi Landspítala sem staðsett er á almennri göngudeild 10E við Hringbraut. Á ígræðslugöngudeild er sjúklingum og fjölskyldum þeirra sem eru í undirbúningi fyrir ígræðslu nýra eða lifrar sinnt með fræðslu og stuðningi, einnig nýrnagjöfum. Jafnframt fer þar fram eftirmeðferð hjá þessum sjúklingahópum ásamt hjartaþegum. Samvinna er við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg í Svíþjóð. Ígræðsluteymið er mannað tveimur hjúkrunarfræðingum og ritara sem vinna náið með sérfræðilæknum og öðrum fagaðilum.

Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfshlutfall er 60-100% dagvinna og er starfið laust strax eða eftir nánara samkomulagi.

Á göngudeild 10E eru einnig sérhæfðar teymismóttökur á sviði skurð- og lyflækninga s.s. meltingarteymi, kviðarhols- og stómateymi og einnig móttaka í sárameðferðir og innrennsli. Þá eru þar innskriftir skurðsérgreina við Hringbraut og svæfingar fyrir allan spítalann. Á deildinni er markvisst unnið að umbótum og framþróun en þar starfar öflugur hópur reyndra hjúkrunarfræðinga og einkennist vinnuandinn af samvinnu, metnaði og góðum liðsanda.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
Góð íslenskukunnátta áskilin
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og eftirlit með líffæraþegum fyrir og eftir líffæraígræðslur
Eftirlit með lifandi líffæragjöfum fyrir og eftir aðgerð
Samskipti við erlenda aðila
Skráning gagna
Þverfagleg teymisvinna með sérfræðilæknum og ýmsum fagaðilum Landspítala
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (33)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali