
Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær er sérhæfð dagþjálfun fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma.
Markmið starfseminnar er að bjóða upp á einstaklingshæfða en jafnframt fjölbreytta þjálfun. Gildin okkar eru virðing, virkni og vellíðan. Frekari upplýsingar eru á hlidabaer.is
Í Hlíðabæ starfar samhentur hópur fólks af ýmsum sviðum. Við leitum að einstaklingum sem hafa ánægju af samskiptum og vill aðstoða aðra við að takast á við fjölbreytt verkefni í jákvæðu og hvetjandi umhverfi. Markmið starfseminnar er að viðhalda líkamlegri, hugrænni og félagslegri færni.
Meðal verkefna eru ýmis konar hreyfing, bæði úti og inni, fjölbreytt hópastarf á vinnustofum sem og í garðinum og þátttaka í söngstundum og félagsstarfi.
Opið er virka daga frá kl 8:00-16:00.
Ráðning frá 1.1.2027 eða eftir samkomulagi.
Launakjör skv. kjarasamningum við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.
- Einstaklingshæfð nálgun í þjónustu
- Skipulagning einstaklings- og hópastarfs með öðru starfsfólki
- Stýra og leiðbeina í einstaklings- og hópastarfi
- Stuðla að góðri andlegri og líkamlegri líðan skjólstæðinganna
- Viðhald og skipulag vinnusvæðis
- Vettvangsferðir
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnu
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
- Reynsla og/eða áhugi á að vinna með fólki og að mæta þörfum þess
- Gott verkvit og ánægja af fjölbreyttum verkefnum, jafnt innanhúss sem utan
- Nám á heilbrigðssviði er kostur, t.d. iðjuþjálfun, sjúkraliðanám, þroskaþjálfun, hjúkrunarfræði og íþrótta- og heilsufræði
- Góð íslenskukunnátta
Íslenska










