Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Starfsmaður óskast til starfa í iðju og dagþjálfun

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða starfsmann í iðju- og dagþjálfun á Hlíð. Um 70-100% starfshlutfall er að ræða eftir samkomulagi. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vill um leið vera hluti af sterku teymi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sjá um og leiða fjölbreytta virkni fyrir notendur í dagþjálfun og íbúa heimilisins, hvetja til virkrar þátttöku og stuðla að aukinni vellíðan og lífsgæðum
  • Þjónusta við notendur dagþjálfunar og íbúa heimilisins sem eiga það sameiginlegt að búa við skerta færni vegna öldrunar og/eða veikinda
  • Aðstoð við athafnir daglegs lífs, félagsleg örvun og stuðningur í þeim tilgangi að hámarka lífsgæði notenda og viðhalda sjálfstæði þeirra
  • Starfinu fylgja mikil samskipti við notendur, íbúa, aðstandendur og samstarfsfólk og skal umhyggja og virðing endurspeglast í öllum þáttum starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almenn menntun
  • Áhugi á þjónustu við aldraða og þá sem búa við langvinn og/eða alvarleg veikindi er skilyrði og kostur að búa yfir reynslu á því sviði
  • Vilji og áhugi til að starfa eftir Eden hugmyndafræðinni
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Að geta unnið sem hluti af heild og með öðrum í þeim tilgangi að hámarka árangur
  • Góð kunnátta í íslensku
Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurbyggð 17, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar