

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Okkur vantar góða manneskju í hópinn okkar.
Þorláksskóli er lítill, sérhæfður grunnskóli í Garðabæ fyrir einhverf börn. Við leitum að traustum, hlýjum og öflugum stuðningsfulltrúa sem vill taka virkan þátt í að skapa öruggan, fyrirsjáanlegan og góðan skóladag fyrir nemendur okkar.
Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem hefur reynslu af starfi með fötluðum einstaklingum, helst börnum og er öruggur í samskiptum og krefjandi aðstæðum. Persónulegir eiginleikar, reynsla og áhugi á starfinu skipta okkur miklu máli.
Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun. Áhersla er lögð á öryggi, tengslamyndun, skýra og fyrirsjáanlega umgjörð, skynúrvinnslu og einstaklingsmiðað nám.
Um er að ræða 100% dagvinnustarf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
• Bein vinna með nemendum í daglegu skólastarfi
• Þátttaka í kennslu, verkefnavinnu og skipulagi skóladagsins
• Stuðningur við tjáskipti, sjálfstæði og þátttöku nemenda
• Aðstoð við daglegar athafnir eftir þörfum hvers barns
• Aðlögun verkefna og umhverfis að þörfum nemenda
• Stuðningur við skynúrvinnslu
• Náið samstarf við annað starfsfólk skólans
• Þátttaka í áframhaldandi mótun og uppbyggingu skólastarfsins
Við leitum að einstaklingi sem:
• Hefur reynslu af starfi með fötluðum einstaklingum, helst börnum
• Hefur áhuga á einhverfu og einstaklingsmiðuðum stuðningi
• Hefur góða færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
• Er hlýr, traustur og yfirvegaður í samskiptum
• Er ábyrgur, stundvís og áreiðanlegur
• Getur haldið ró og yfirsýn þegar aðstæður verða krefjandi
• Á auðvelt með samstarf og að vinna sem hluti af teymi
• Sýnir frumkvæði og er tilbúinn að taka virkan þátt í skólastarfinu
• Ber virðingu fyrir fjölbreytileika og styrkleikum einhverfra barna
• Hefur vilja og áhuga á að læra og tileinka sér nýjar leiðir í starfi
Þekking á einhverfu, óhefðbundnum tjáskiptaleiðum, skynúrvinnslu eða skipulagðri kennslu er kostur en ekki skilyrði.
• Fjölbreytt og innihaldsríkt starf í litlum og persónulegum skóla
• Náið samstarf og stuðning frá öflugu starfsfólki
• Fræðslu og handleiðslu í starfi
• Tækifæri til að byggja upp þekkingu og reynslu á sviði einhverfu
• Tækifæri til að taka þátt í mótun og uppbyggingu nýs sérhæfðs skóla
• Starfsumhverfi þar sem öryggi, virðing og vellíðan eru í fyrirrúmi
Íslenska










