
Rimaskóli
Rimaskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10.bekk og eru nemendur rúmlega 500. Skólinn er hjartað í hverfinu og hefur á að skipa glæsilegt húsnæði og skólalóð. Skólinn er þekktur fyrir frábæran árangur í skák og hafa fjölmargir nemendur skólans fengið viðurkenningu á því sviði. Skólinn er með stefnuna uppeldi til ábyrgðar og samhliða því erum við að innleiða Heillaspor (Nurture). Skólinn er með frímínútnaverkefni og skipuleggja nemendur leiki og stjórna í frímínútum. Kennarar skólans eru að innleiða leiðsagnarnám og er sífellt verið að skoða hvernig við getum komið betur til móts við ólíka nemendur í fjölbreytilegu samfélagi.
Stuðningsfulltrúi óskast við Rimaskóla
Okkur í Rimaskóla vantar hressan aðila í stuðning í fyrsta bekk. Viðkomandi aðstoðar kennara í tímum, sinnir nemendum í frímínútum og aðstoðar í rútugæslu eftir ákveðnu skipulagi.
Við leitum að aðila sem tekur frumkvæði, hefur áhuga og vilja til að efla menntun nemenda, talar frábæra íslensku og er hugmyndaríkur. Ert þú aðilinn sem við erum að leita að?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur í leik og starfi.
- Sinna útigæslu og sundrútu
- Vera í samstarfi með fagfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Hreint sakavottorð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur8. október 2026
Laun (á mánuði)370.000 - 530.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Rósarimi 11, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari/leiðbeinandi óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Stuðningsfulltrúi óskast við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Starfsfólk óskast í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Deildarstjóri óskast í afleysingu
Frístundamiðstöðin Þorpið

Stuðningsfulltrúi
Suðurbæjarskóli ehf.

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Stuðningsfulltrúi í Kóraskóla
Kóraskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari óskast
Sveitarfélagið Strandabyggð