

Íbúðakjarni / Skammtímavistun: Þroskaþjálfi
Íbúðakjarni / Skammtímavistun óskar eftir að ráða metnaðarfullan, jákvæðan og þjónustulundaðan þroskaþjálfa í 89% vaktavinnustarf, en um framtíðarstarf er að ræða. Ef ekki næst að ráða þroskaþjálfa í starfið höfum við áhuga á að ráða iðjuþjálfa, sem þá þarf svo þarf að uppfylla menntunar- og hæfniskröfur eftir hvað við á. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Þjónusta í Íbúðakjarna og Skammtímavistun miðast við að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði notenda. Leitast er að koma til móts við þarfir hvers og eins, laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum notenda á hverjum tíma. Starfmaður þarf að hafa Íslenskukunnáttu á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga með mismunandi þarfir.
- Sinnir faglegu starfi í samstarfi og samráði við þjónustunotendur og forstöðumann.
- Ber ábyrgð á gerð og eftirfylgni þjónustuáætlana fyrir þjónustunotendur eftir þörfum hvers og eins.
- Ber ábyrgð á að velferðarúrræðum þjónustunotenda.
- Tekur þátt í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustunotendur.
- Er vaktstjóri á helgarvöktum.
- Þroskaþjálfamenntun
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi C1 (samkv. evrópska tungumálarammanum)
- Bílpróf
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
Heilsusjóður Dalvíkurbyggðar
Íslenska










