Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð

Frístund: frístundarleiðbeinandi

Frístund óskar eftir að ráða frístundarleiðbeinanda í u.þ.b. 45% starfshlutfall í frístund og sumarfrístund (starfshlutfall eykst á opnunartíma sumarfrístundar), en um framtíðarstarf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Upplýsingar um starfið:

Meginmarkmið starfsins er að bjóða upp á innihaldsríkt og þroskandi frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi barna lýkur. Markmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf frístundar. Starfsfólk frístundar leitast við að mæta börnum eftir þeirra þörfum, til að efla sjálfstraust, sjálfsstæði og félagsfærni þeirra. Starfmaður þarf að hafa Íslenskukunnáttu á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðbeina og styðja börn í leik og starfi.
  • Skipuleggja faglegt starf og leiða fjölbreyttar og skapandi frístundastundir fyrir börn.
  • Tryggja öryggi og vellíðan þátttakenda í öllu starfi.
  • Stuðla að samstarfi við foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila innan sveitarfélagsins.
  • Fylgja stefnu Dalvíkurbyggðar í frístundamálum og leggja sitt af mörkum til þróunar starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi að vinna með börnum. 
  • Góð hæfni í samskiptum, samvinnu og leiðsögn hópa.
  • Frumkvæði, ábyrgðartilfinning og skipulagshæfni.
  • Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni.
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð samkvæmt lögum.
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvík , 620 Dalvík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar