

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Stöðin (Stöðvarfjörður)
Leitast er eftir drífandi, hugmyndaríkum og ábyrgum einstaklingum í fjölbreytt og skemmtilegt starf með með börnum og ungmennum í Fjarðabyggð. Ef þú ert hugmyndarík/ur, skapandi og hefur áhuga á starfi með börnum og ungmennum, Þá erum við að leita að þér!
Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð ber ábyrgð ásamt forstöðumanni á framkvæmd félagsmiðstöðvarstarfs fyrir ungmenni á aldrinum 10 - 16 ára. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku, ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfðar til barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í félagsmiðstöðinni.
Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér uppbyggilegt félagsmiðstöðvastarf fyrir 10-16 ára börn og ungmenni.
- Starfmaður tekur þátt í að skipuleggja og framkvæma starfssemi félagsmiðstöðvarinnar.
- Stuðla að virðingu, jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum við börn og unglinga.
- Góð samvinna og samráð við börn, unglinga og samstarfsfólk.
- Sinnir hefðbundnum opnunum félagsmiðstöðva og verkefnum sem fylgja þeim s.s. undirbúningi og frágangi.
- Æskilegt að frístundaleiðbeinandi hafi menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum
- Umsækjendur þurfa að búa yfir ákveðinni festu, hafa góða skipulags- og stjórnunarhæfileika, vera liprir í mannlegum samskiptum og hafa hreina sakaskrá.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, góð samstarfshæfni og geta til að miðla upplýsingum.
- Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera laus við fordóma.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
- Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum.
- Geta til að tekið virkan þátt í hugmyndavinnu og breytingum með jákvæðni og samvinnu.
- Gott vald á íslenskri tungu
Íslenska










