

Starfsmaður í þvottahús
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili er með starfsemi á tveimur stöðum á Akureyri, Hlíð og Lögmannshlið. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum dvelja íbúar í hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og tímabundnum dvölum. Auk þess er starfrækt iðju- og dagþjálfun sem og ýmis stoðþjónusta.
Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna. Markmið allrar þjónustu sem veitt er á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er að tryggja öryggi og vellíðan íbúa og standa vörð um sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðingu.
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða starfsmann í tímabundið starf í þvottahúsið á Hlíð. Um 70% starfshlutfall í dagvinnu er að ræða út maí 2027. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vill um leið vera hluti af sterku teymi.
Heilsuvernd hjúkrunarheimili leggja áherslu á góðvild og gleði í öllum samskiptum því hver dagur er dýrmætur!
- Almenn störf í þvottahúsi
- Starfsmaður ber ábyrgð á þeim störfum sem honum eru falin
- Almenn menntun
- Áhugi á þjónustu við aldraða og þá sem búa við langvinn og/eða alvarleg
- Vilji og áhugi til að starfa eftir Eden hugmyndafræðinni
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileikar í mannlegum samskiptum
- Að geta unnið sem hluti af heild og með öðrum í þeim tilgangi að hámarka árangur
- Góð kunnátta í íslensku
Íslenska