Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn

Við leitum að öflugum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum verkefnastjóra til að taka þátt í uppbyggingu og þróun á heimili fyrir börn í Mosfellsbæ. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir sterkri faglegri sýn, hefur ánægju af að vinna með fólki og vill hafa jákvæð áhrif á líf barna og þróun þjónustunnar.

Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða þjónustu með það að markmiði að auka félagslega þátttöku og bæta líðan barnanna. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu - og starfsáætlunum.

Sem verkefnastjóri gegnir þú lykilhlutverki í daglegri starfsemi heimilisins. Þú styður við börnin, leiðir faglegt starf í samstarfi við stjórnendur og tekur virkan þátt í að skapa jákvæða menningu þar sem velferð, virðing og farsæld eru í fyrirrúmi. Starfið hentar einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að vinna með börnum, vill leiða fólk áfram.

Um er að ræða 100% vaktavinnu þar sem 40% starf á skrifstofu og 60% á vöktum


Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og samhæfa daglega starfsemi heimilisins.
  • Meta þjónustuþarfir og fylgja eftir þjónustuáætlunum.
  • Veita starfsfólki faglegan stuðning, leiðsögn og ráðgjöf.
  • Tryggja fagleg vinnubrögð, skráningar og upplýsingamiðlun.
  • Veita börnum einstaklingsmiðaðan stuðning og stuðla að farsæld þeirra.
  • Annast samskipti og samstarf við aðstandendur og aðra þjónustuaðila.
  • Taka þátt í mönnun, teymisvinnu og þróun starfseminnar.
  • Sinna öðrum verkefnum í samráði við forstöðumann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði félagsvísinda, uppeldisfræða, þroskaþjálfunar eða annarra tengdra greina.
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða einstaklingum með stuðningsþarfir.
  • Stjórnunarreynsla eða reynsla af verkefnastýringu er kostur.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna undir álagi.
  • Góð tölvukunnátta og færni í skráningum og upplýsingamiðlun.
  • Sveigjanleiki, þjónustulund og jákvætt viðhorf.
  • Áhugi á að vinna að farsæld og velferð barna.
Auglýsing birt15. október 2026
Umsóknarfrestur29. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar