
Hvernig hafa húsin okkar það?
Taktu þátt í að móta framtíð stærsta fasteignasafns landsins sem verkefnastjóri viðhaldsáætlana.
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins og vinnur nú að því að gera langtímaáætlanir um viðhald þess með heildstæðum hætti, verkefni sem ekki hefur áður verið sinnt á þennan hátt. Við leitum að öflugum verkefnastjóra viðhaldsáætlana til að ganga til liðs við teymi sem sinnir verkefninu. Þar gefst tækifæri til að hafa mikil áhrif á hvernig verkefnið og verklagið þróast, greina ástand og viðhaldsþörf eigna og hafa áhrif á forgangsröðun verkefna svo eignirnar haldi verðgildi sínu og nýtist sem best.
Í starfinu stýrir þú úttektum á ástandi fasteigna og gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald, og tekur þátt í að þróa verklag og viðmið við ástandsmat. Þú kemur að gerð útboðsgagna og samninga um ástandsmat og vinnur náið með eignastýringu, þjónustuborði og forsvarsmönnum stofnana. Eignirnar eru af öllum toga og um allt land, allt frá skólum, heilbrigðisstofnunum og lögreglustöðvum til menningarhúsa og sögulegra bygginga, og einhverjar ferðir innanlands geta fylgt starfinu.
- Verkefnastjórn við greiningu á viðhaldsþörf eigna ríkisins
- Umsjón með úttektum á ástandi fasteigna, mat á viðhaldsverkefnum og þátttaka í forgangsröðun
- Gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald eigna
- Áframhaldandi þróun verklags og viðmiða við ástandsmat
- Þátttaka í gerð útboðsgagna og rekstri samninga um ástandsmat
- Samstarf við eignastýringu og viðskiptastjóra um forgangsröðun eigna og verkefna
- Háskólamenntun í mannvirkjagerð, t.d. byggingafræði, tæknifræði, arkitektúr eða verkfræði
- Að minnsta kosti 5 ára reynsla í mannvirkjagerð
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
- Stafræn færni, geta til að vinna með gögn og læra á ný tölvukerfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Eftirfarandi telst til kosta
- Reynsla af viðhaldi, ástandsmati eða umsjón fasteigna
- Iðnmenntun og starfsreynsla á verkstað
- Reynsla af hönnun bygginga
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun
- Reynsla af útboðsmálum, innkaupum, rekstri samninga eða opinberri stjórnsýslu
Íslenska
Enska









