
Norðurorka hf.
Norðurorka hf. rekur fjölbreytta veitustarfsemi á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu.
Meginhlutverk fyrirtækisins er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni, rekstri dreifikerfis raforku og rekstri fráveitu.
Norðurorka hf. er reyklaus vinnustaður og starfar skv. vottuðu gæðakerfi (ISO 9001).

Verkefnastjóri á Verkefnastofu
Norðurorka leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum verkefnastjóra á Verkefnastofu.
Starfið er á framkvæmdasviði og verkefnastjóri starfar í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga innan Norðurorku, auk þess að vinna með utanaðkomandi verktökum, ráðgjöfum og opinberum aðilum. Starfið krefst reglulegra vettvangsferða á framkvæmdasvæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur, framkvæmd og eftirfylgni verkefna fyrir veitukerfi
- Áætlanagerð, útboðsgögn og samningar við verktaka
- Eftirlit með framvindu verkefna og að þau séu unnin samkvæmt áætlun, fjárhagsramma, gæðakröfum og lögum/öryggisreglum
- Samhæfing hagsmunaaðila s.s. innanhúsdeilda, verktaka, ráðgjafa, sveitarfélaga o.fl.
- Regluleg skýrslugerð til stjórnenda og eftirlitsaðila ef við á
- Eftirlit með öryggi á vinnusvæðum og að lögum og reglugerðum um heilbrigði, öryggi og vinnuvernd sé fylgt
- Huga að nýtingu auðlinda, umhverfismálum og sjálfbærni í framkvæmdum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði
- Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur
- Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Skipulagshæfni, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
- Reynsla af kostnaðarstýringu, samningagerð og útboðsferlum er kostur
- Geta til forgangsröðunar og að halda mörgum boltum á lofti í einu
- Þekking á stöðlum verkefnastjórnundar er kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsueflingarstyrkur
- Símtækjastyrkur
- Niðurgreitt mötuneyti
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Rangárvellir 4, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFrumkvæðiJákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri fjárfestinga
Rio Tinto á Íslandi

Sérfræðingur í þróun virkjana
Orkusalan

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Verkefnastjóri mannauðsmála
Háskólinn á Akureyri

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík ehf

Avionics/Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Verkefnastjóri rekstrar
Landsvirkjun

Deildarstjóri framleiðslustýringar
Orka náttúrunnar

Maintenance Worker – Full-Time / Minimum 6 Months
Hótel Dyrhólaey