
Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi – í daglegu tali oft nefnt “ISAL” – hefur framleitt ál í Straumsvík frá árinu 1969 og notar til þess íslenska umhverfisvæna orku.
Við framleiðum um 200 þúsund tonn af hágæðaáli á ári og sendum það til fjölmargra viðskiptavina víðsvegar í Evrópu. Þannig öflum við dýrmætra gjaldeyristekna fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag.
Ál gerir daglegt líf okkar betra; það er meðal annars notað í bíla, flugvélar, byggingar, raftæki á borð við tölvur og síma, og umbúðir utan um matvæli, drykki og lyf. Mikil meirihluti áls er endurunninn sem þýðir að komandi kynslóðir geta notað það aftur og aftur með lítilli fyrirhöfn.
Við erum fjölbreyttur vinnustaður tæplega 400 starfsmanna auk verktaka.
Við kappkostum að vera í fararbroddi í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum og leggjum einnig mikla áherslu á starfsmenntamál og jafnrétti á vinnustað.
Gildi okkar eru: umhyggja - hugrekki - framsækni

Verkefnastjóri fjárfestinga
Vilt þú leiða fjölbreytt og krefjandi fjárfestingarverkefni sem hafa raunveruleg áhrif á framtíðarþróun Rio Tinto í Straumsvík?
Við leitum að öflugum verkefnastjóra til að ganga til liðs við verkefnastjórnunarteymið okkar. Starfið felur í sér stjórnun fjárfestingarverkefna á öllum stigum, frá greiningu og undirbúningi til framkvæmda, gangsetningar og afhendingar. Verkefnin eru fjölbreytt að umfangi og stærð og geta náð frá smærri umbótaverkefnum upp í stór fjárfestingarverkefni sem hafa áhrif á rekstur verksmiðjunnar til framtíðar. Í starfinu gefst tækifæri til að vinna náið með sérfræðingum innan fyrirtækisins, verktökum, ráðgjöfum og samstarfsaðilum innan Rio Tinto samstæðunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og stýra fjárfestingarverkefnum frá hugmynd að afhendingu.
- Ábyrgð á umfangi, kostnaði, tímaáætlun og gæðum verkefna.
- Gerð og eftirfylgni kostnaðar-, verk- og framkvæmdaáætlana.
- Stýra undirbúningi verkefna, hönnun, innkaupum og framkvæmdum.
- Eftirlit með verkfræðilegri hönnun og framkvæmdum.
- Stýra samskiptum við verktaka, ráðgjafa, birgja og aðra hagaðila.
- Tryggja að verkefni uppfylli kröfur um öryggi, umhverfi og gæði.
- Vinna náið með framleiðslu- og viðhaldsdeildum við undirbúning og framkvæmd verkefna.
- Tryggja örugga gangsetningu og afhendingu verkefna til reksturs.
- Stuðla að stöðugum umbótum í verkefnastjórnun og miðlun reynslu og lærdóms úr verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, helst á sviði verkfræði, tæknifræði eða sambærilegri grein.
- Reynsla af og góð þekking á aðferðum verkefnastjórnunar.
- Reynsla af stjórnun fjárfestingar-, framkvæmda- eða iðnaðarverkefna er kostur.
- Reynsla af gerð og eftirfylgni kostnaðar- og tímaáætlana.
- Leiðtogahæfileikar og hæfni til að leiða þverfagleg teymi.
- Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
- Frítt fæði í mötuneyti
- Heilsustyrkur
- Fæðingarorlofsstyrkur allt að 18 vikur á óskertum launum
- Velferðartorg
- Þátttaka í hlutabréfakaupum
- Öflugt þjálfunar- og fræðslustarf
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Straumsvík, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðLeanSamviskusemiSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri á Verkefnastofu
Norðurorka hf.

Sérfræðingur í þróun virkjana
Orkusalan

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Verkefnastjóri mannauðsmála
Háskólinn á Akureyri

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík ehf

Avionics/Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Verkefnastjóri rekstrar
Landsvirkjun

Deildarstjóri framleiðslustýringar
Orka náttúrunnar

Viltu taka þátt í að móta næstu kynslóð vélstjóra og tæknimenntaðra sérfræðinga?
Tækniskólinn