
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Verkefnastjóri rekstrar
Við hjá Landsvirkjun leitum að skipulögðum liðsfélaga til að leiða og samræma verkefni sem styðja við rekstur og þróun vatnsaflsstöðva og innviða Landsvirkjunar. Starfið er á sviði Vatnsafls og felur í sér fjölbreytt verkefni, meðal annars á sviði stjórnunarkerfa, gæðamála, upplýsingaöryggis og rekstrarþróunar.
Helstu verkefni:
- Leiða og samræma verkefni þvert á reksturinn.
- Taka þátt í þróun og viðhaldi stjórnunarkerfa, verklagsreglna og mælikvarða.
- Styðja við innleiðingu og eftirfylgni á sviði upplýsingaöryggis og gæðamála.
- Stuðla að stöðugum umbótum í rekstri og verklagi.
- Fylgja eftir aðgerðum sem koma úr úttektum, áhættumati og umbótaverkefnum.
- Taka saman greiningar, stöðuyfirlit og tillögur til stuðnings ákvörðunartöku.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun, rekstri og/eða umbótastarfi.
- Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði og hæfni til að fylgja verkefnum markvisst eftir.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Reynsla af stjórnunarkerfum, gæðamálum eða upplýsingaöryggi er kostur.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu.
Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiGreiningarfærniMannleg samskiptiSkipulagVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Avionics/Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Deildarstjóri framleiðslustýringar
Orka náttúrunnar

Gatna- og veghönnuður
exa nordic

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf