
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur átta gagnaver á Norðurlöndum. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth á Reykjanesi leitar að öflugum sérfræðingi til að tryggja áreiðanlegan rekstur og áframhaldandi þróun stjórn- og eftirlitskerfa gagnaversins. Starfið felur í sér umsjón með PLC-, SCADA- og BMS-kerfum, viðhald og bilanagreiningu, ásamt innleiðingu tæknilegra umbóta sem styðja við öruggan og skilvirkan rekstur.
Við leitum að aðila með sterkan tæknilegan grunn, góða samskiptahæfni og getu til að vinna sjálfstætt og þvert á teymi. Unnið er í dagvinnu á virkum dögum með þátttöku í bakvöktum samkvæmt nánara fyrirkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með stjórn-, eftirlits- og mælikerfum gagnaversins
- Uppsetning, viðhald, bilanagreining og þróun PLC-, SCADA- og BMS-kerfa
- Skipulagning og framkvæmd fyrirbyggjandi og leiðréttandi viðhalds
- Umsjón með mælikerfum raforkudreifingar og kvörðun mælitækja
- Framkvæmd tæknilegra umbóta og samþykktra kerfisuppfærslna
- Stuðningur við rekstur og úrlausn tæknilegra áskorana
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði verkfræði, iðnfræði eða sambærilegra tæknigreina
- Sveinspróf er kostur
- Reynsla af stjórnkerfum, rekstri og viðhaldi tæknibúnaðar ásamt þekkingu á netkerfum
- Þekking á PLC-, SCADA- og/eða BMS-kerfum
- Þekking á samskiptastöðlum á borð við Modbus TCP/IP eða sambærilegum lausnum
- Reynsla af Schneider PME, EBO eða Janitza GridVis er kostur
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
- Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
- Umbótahugarfar, öryggisvitund og þjónustulund
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Sjónarhóll 6, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Iðmenntaður einstaklingur í eignarumsýsla
Eir hjúkrunarheimili

Rafvirki óskast sem fyrst!
RST Net ehf.

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík ehf

Avionics/Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Þjórsársvæði, rekstur og viðhald aflstöðva
Landsvirkjun

Verkefnastjóri rekstrar
Landsvirkjun

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Tæknistarf á Akureyri
Securitas

Deildarstjóri framleiðslustýringar
Orka náttúrunnar

Gatna- og veghönnuður
exa nordic

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur