
Sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar
Sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar
Akureyrarbær óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga í starf sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs. Um er að ræða umfangsmikið stjórnunarstarf þar sem reynir á leiðtogahæfni og getu til að leiða fjölbreytta starfsemi, framkvæmdir og þróun mikilvægra innviða sveitarfélagsins.
Umhverfis- og mannvirkjasvið fer með fjölbreytt og umfangsmikil verkefni sem snúa að daglegum rekstri og framtíðaruppbyggingu Akureyrarbæjar. Framundan eru spennandi verkefni og tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar bæjarins, þar sem horft er til framtíðar með áherslu á öfluga innviði, vandað bæjarumhverfi og sjálfbæra þróun.
Undir sviðið heyra meðal annars fasteignir og mannvirki bæjarins, framkvæmdir og viðhald, gatna- og fráveitumál, opin svæði, rekstur Hlíðarfjalls, umhverfis- og loftslagsmál, almenningssamgöngur auk bruna- og almannavarna.
Sviðsstjóri gegnir lykilhlutverki í rekstri og þróun málaflokka sviðsins. Starfið felur í sér náið samstarf við bæjarstjóra, kjörna fulltrúa, stjórnendur og starfsfólk bæjarins auk fjölmargra hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Forysta, stjórnun og fagleg ábyrgð á starfsemi umhverfis- og mannvirkjasviðs.
- Stefnumótun og þróun þeirra málaflokka sem undir sviðið heyra.
- Yfirumsjón með framkvæmdum, rekstri, viðhaldi og þróun tæknilegra innviða og fasteigna bæjarins.
- Ábyrgð á gerð og eftirfylgni áætlana sviðsins s.s. starfs- og fjárhagsáætlana.
- Forysta í umbótum, hagræðingu og þróun verklags og þjónustu.
- Yfirumsjón með útboðum, samningum og aðkeyptri ráðgjöf og þjónustu.
- Forysta og stuðningur við stjórnendateymi sviðsins og tryggir öflug samstarf þvert á starfsemina.
- Undirbúningur mála fyrir umhverfis- og mannvirkjaráð og eftirfylgni ákvarðana.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði eða af öðru sviði sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
- Stjórnunar- og rekstrarreynsla.
- Reynsla af áætlanagerð og verkefnastjórnun.
- Þekking og reynsla af framkvæmdum, mannvirkjum, tæknilegum innviðum eða öðrum málaflokkum sem undir sviðið heyra.
- Þekking á þeim lögum og reglum sem tengjast starfssviðinu er kostur.
- Leiðtogahæfni ásamt góðri samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, framsýni og hæfni til að leiða breytingar og umbætur.
- Mjög góð þekking og reynsla af nýtingu stafrænna lausna í stjórnun, rekstri og ákvarðanatöku.
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2026.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).
Enska
Íslenska










