

Við leitum að rafmagnstækni- eða iðnfræðingi til að styrkja teymið okkar!
Við leitum að rafmagnstækni- eða iðnfræðingi til að styrkja teymið okkar. Starfsmaður tilheyrir teymi sem annast commissioning fyrir hönd Rafal og er í virkum samskiptum við verkefnastjóra, verkkaupa, framleiðendur og aðra þjónustuaðila. Starfið gefur tækifæri til að vinna með nýjustu kynslóð af rafbúnaði sem knýr AI- og HPC-innviði, í grein sem er í hraðri sókn bæði hér á landi og erlendis
• Utanumhald efnissamþykkta
• Utanumhald með frávikum og úrlausnum
• Gæðaeftirlit með teikningum og hönnunargögnum
• Gæðaeftirlit með smíði og uppsetningum á verkstað
• Umsjón með varðveislu gæðaskjala og prófunargagna
• Verksmiðjuprófanir (FAT) fyrir búnað sem Rafal afhendir verkkaupa
• Site Acceptance prófanir (SAT) á verkstað
• Forvirkniprófanir (Pre-Functional Testing)
• Virkniprófanir (Functional Testing)
• Samþættar virkniprófanir (Integrated Systems Testing)
Kerfin sem falla undir prófanir af hálfu Rafal eru há- og lágspennt rafkerfi, varaaflskerfi, stjórnkerfi og önnur kerfi sem tilheyra rekstri colo-gagnavera. Starfið hentar einstakling sem er skipulagður, með mikla öryggisvitund og er áhugsamur um rafbúnað og rekstur gagnavera.
- BSc rafmagnstæknifræði eða Iðnfræði
- Sveinspróf í Rafvirkjun
- Hæfni í greiningarvinnu og úrvinnslu gagna
- Færni í skýrslugerð og framsetningu gagna
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Færni í samskiptum og teymisvinnu með tæknifólki og viðskiptavinum
Kostir við að starfa hjá Rafal
- Vandað og öruggt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
- Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
- Árlegar heilsufarsmælingar
Rafal ehf. leggur sérstaka áhersla á rekstrarþjónustu, endurbætur og uppbyggingu háspennu- og lágspennukerfa fyrir raforkuöflun, flutning, raforkudreifingu og raforkuiðnað. Þetta á einnig við um dreifikerfi fjarskiptafyrirtækja.
Rafal er fjölskylduvænn vinnustaður og styður við að það sé jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Gildi Rafal eru: Hugrekki, Ástríða, Samstaða og Traust
Rafal hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jakob Brynjar Sigurðsson, deildarstjóri, [email protected]
Enska
Íslenska








