
HD ehf. Iðn- og tækniþjónusta
HD ehf. er eitt öflugasta iðn- og tækni-þjónustufyrirtækið á Íslandi og þjónustar meðal annars orku- og veitufyrirtæki, stóriðju, sjávarútveg og fiskeldi. HD er framsækið og vel rekið fyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum tengdum viðhaldi á vélbúnaði, stálsmíði og tækniþjónustu.
Hjá HD starfa um 200 manns á 6 starfs-stöðvum fyrirtækisins í Kópavogi, Mosfellsbæ, Akureyri, Straumsvík, Grundartanga og Eskifirði. Fyrirtækið er vel búið tækjum og aðstöðu sem tryggir hámarks fagmennsku og skilvirkni. Okkar markmið er að veita viðskiptavinum faglega og skilvirka þjónustu sem stuðlar að auknu öryggi, áreiðanleika og hagkvæmni í þeirra rekstri.
Við leggjum ríka áherslu á að skapa gott starfsumhverfi þar sem starfsmenn fá tækifæri til að þróast í starfi og vaxa með fyrirtækinu. Við styðjum framtíðar fagmenn með nemastyrkjum og erum opin fyrir hæfu, áhugasömu og metnaðarfullu fólki sem axlar ábyrgð, sýnir frumkvæði og vill taka virkan þátt í framþróun fyrirtækisins. Við veitum starfsmönnum okkar tækifæri til að þróast í krefjandi og spennandi umhverfi.
Við leitum að einstaklingum sem búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vinna vel í teymi og hafa metnað til að skila framúrskarandi starfi. Starfsmenn HD njóta meðal annars líkamsræktarstyrks og heits hádegismatar.
Gildin okkar – öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska – eru okkur að leiðarljósi í öllum daglegum störfum.
Deildarstjóri Sölu- og þjónustulausna
HD leitar að deildarstjóra Sölu- og þjónustulausna. Viðkomandi mun leiða nýja einingu á tæknisviði fyrirtækisins og bera ábyrgð á rekstri, sölu, þjónustu og þróun hennar.
Starfið hentar drífandi leiðtoga sem hefur áhuga á að tengja saman viðskipti, tækni og þjónustu og greina tækifæri til vaxtar og þróunar.
Vinnutími er mánudaga-fimmtudaga 8-16 og föstudaga 8-15:15
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða uppbyggingu deildarinnar og þróa verklag, ferla og skipulag
- Tryggja árangur í sölu á búnaði, lausnum og sérhæfðri þjónustu til viðskiptavina
- Vinna að þróun þjónustu og finna ný tækifæri til vaxtar
- Bera ábyrgð á sölu, þjónustu og samskiptum við viðskiptavini
- Tryggja faglega framkvæmd verkefna
- Leiða teymi starfsfólks og byggja upp öfluga liðsheild
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða umfangsmikil reynsla sem nýtist í hlutverkinu
- Reynsla af stjórnun, rekstri, sölu og/eða þjónustustarfsemi á fyrirtækjamarkaði
- Góður skilningur á fjárhagslegri ábyrgð, áætlanagerð og eftirfylgni með rekstrarárangri
- Reynsla af viðskiptaþróun, stefnumótun og innleiðingu umbóta
- Þekking eða reynsla af tæknilegum búnaði, iðnaðarlausnum eða viðhaldsþjónustu
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og árangursmiðuð nálgun
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Gott vinnuumhverfi
- Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
- Líkamsræktarstyrkur
- Námsstyrkur
Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur25. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturvör 36, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Þjónustustjóri Sérverkefna
AÞ-Þrif ehf.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Þjónustu- og gæðastjóri | Guest Experience & Quality Manager
Íslandshótel

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Þjálfari verslana og vörusölu
Nova

Fjármálastjóri
GoPro