Vélanaust
Vélanaust

Forstöðumaður

Vélanaust óskar eftir að ráða öflugan og skipulagðan einstakling til að hafa yfirumsjón með daglegum rekstri, vörulager, birgðahaldi og innkaupum fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt stjórnunarstarf þar sem reynir á góða yfirsýn, skipulagshæfni og hæfni til að leiða fólk og tryggja skilvirka verkferla.

Framundan hjá Vélanaust er tími umbreytinga og er þetta því gott tækifæri fyrir einstakling með áhuga á breytingastjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirumsjón með daglegum rekstri, vörulager og birgðahaldi
  • Mótun framtíðarstefnu fyrir félagið
  • Stjórnun og skipulag verkefna og mannafla
  • Ábyrgð á innkaupaferlum, samskiptum við birgja og eftirfylgni pantana
  • Eftirlit með birgðastöðu, vöruflæði og afhendingu
  • Greining og eftirfylgni með rekstrartölum og lykilmælikvörðum
  • Þróun og innleiðing skilvirkra verkferla og vinnubragða
  • Tryggja rétta skráningu og meðferð upplýsinga í kerfum fyrirtækisins
  • Náið samstarf og samhæfing við sölu-, lager- og þjónustusvið
  • Úrlausn frávika og eftirfylgni með rekstrartengdum málum
  • Þátttaka í áætlanagerð og öðrum verkefnum tengdum þróun rekstrar
  • Þátttaka í framkvæmdastjórn

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af rekstri, stjórnun, innkaupum, birgðahaldi eða sambærilegum verkefnum
  • Stjórnunarreynsla og hæfni til að leiða og virkja starfsfólk
  • Góð rekstrarleg hugsun og hæfni til að greina upplýsingar og sjá tækifæri til umbóta
  • Þekking á varahlutum í atvinnubíla og tæki
  • Þekking á vörustýringu, lagerrekstri og/eða innkaupum
  • Áhugi á notkun gervigreindar
  • Metnaður og mjög góð skipulagshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð nálgun
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

Um Vélanaust

Vélanaust ehf. var stofnað árið 2009 með það að markmiði að bjóða sérhæfða varahluti fyrir vinnuvélar, rútur og vörubifreiðar á hagstæðu verði. Frá stofnun hefur fyrirtækið lagt áherslu á vandaða þjónustu og faglega ráðgjöf. Starfsmenn okkar búa yfir víðtækri þekkingu á sviði vinnuvéla, rútu- og vörubifreiða og leggja metnað í að finna réttar lausnir fyrir viðskiptavini.

Vélanaust er systurfélag VélRásar og Véltinda og er staðsett í Hafnarfirði, hátt í 100 manns starfa hjá félaginu og tengdum félögum.

Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur24. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Álhella 8, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BirgðahaldPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.VörustjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar