
Kerecis
Kerecis (www.kerecis.com) er líftæknifyrirtæki sem er frumkvöðull í notkun á roði og fitusýrum í lækningartilgangi. Vörur Kerecis eru notaðar til meðhöndlunar á margskonar vefjaskaða s.s. þrálátum sárum, brunasárum, munnholssárum og til margskonar uppbyggingar á líkamsvef. Gildi Kerecis byggja á samúð, heiðarleika og áhugasemi.
Um 600 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Ísafirði, í Reykjavík, Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Sölumenn Kerecis selja vörur fyrirtækisins beint til heilbrigðisstofnana á Íslandi, á Þýskumælandi mörkuðum og Bandaríkjunum. Í öðrum heimshlutum er selt í gegnum dreifingaraðila.
Kerecis er það fyrirtæki sem vex hraðast í heiminum á sviði meðferðar á vefjaskaða. Tækni félagsins hefur vakið athygli á heimsvísu og á félagið í samstarfi um þróun og notkun á tækni þess víða um heim m.a. við bandarískar varnarmálastofnanir. Í Bandaríkjunum eru vörur Kerecis m.a. notaðar af mörgum stærstu spítölum landsins.

Verkfræðingur í vöruþróun
Verkfræðingur í vöruþróun
Verkfræðingur í vöruþróun hjá Kerecis er hluti af reyndu teymi sérfræðinga í lækningatækjum sem bera ábyrgð á að þróa og koma á markað næstu kynslóð lækningartækja til meðferðar á mismunandi tegundum sára.
Verkfræðingur í vöruþróun hefur aðsetur á skrifstofu Kerecis í Reykjavík og heyrir undir deildarstjóra vöruþróunar. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróa nýjar vörur, rafbúnað, og aðrar tæknilausnir fyrir Kerecis.
- Sannreyna og skjalfesta að vörurnar uppfylli öll skilyrði lækningatækja samkvæmt gæðakerfi Kerecis.
- Taka þátt í hugmyndavinnu, rannsóknum og nýsköpunarvinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- B.Sc. eða M.Sc í verkfræði eða sambærilegu fagi.
- Æskilegt að viðkomandi sé með a.m.k. 5 ára reynslu í vöruþróun.
- Reynsla af hönnun og þróun stafrænna og hliðrænna rása (PCB).
- Reynsla af notkun CAD, og hugbúnaðar fyrir prófanir og mælingar.
- Áhugi á vöruþróun, tækninýjungum og líffræði.
- Skipulag, frumkvæði, drifkraftur og góð samskiptahæfni.
- Reynsla af vöruþróun á lækningatækjum er kostur.
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Vörustjóri hjá Kóða og Keldunni
Kóði

Vöruhönnuður
Alfreð

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania