Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál

Rafveitustjóri

Mótaðu framtíðina

Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.

Við leitum að reynslumiklum rafveitustjóra til að leiða öruggan og áreiðanlegan rekstur raforkukerfa sem styðja við eitt skilvirkasta álver heims. Um er að ræða mikilvægt stjórnunarstarf þar sem þú sameinar tæknilega sérþekkingu, framúrskarandi rekstur og leiðtogahæfni til að tryggja áframhaldandi árangur starfsemi okkar.


Um starfið:

Sem yfirmaður rafveitu berð þú ábyrgð á daglegum rekstri, viðhaldi og stöðugum umbótum á raforkukerfum Alcoa Fjarðaáls. Þú munt gegna lykilhlutverki í að viðhalda rafmagnsöryggi, tryggja rekstraröryggi kerfa, styðja við stefnumótandi uppbyggingu innviða og þróa öflugt teymi sérhæfðra fagmanna. Í nánu samstarfi við teymi fyrirtækisins og ytri hagsmunaaðila munt þú stuðla að framúrskarandi árangri á sviði öryggis og reksturs, um leið og þú styður við áherslur Alcoa á gæði og stöðugar umbætur.

Af hverju Alcoa?

Hjá Alcoa munt þú starfa hjá alþjóðlegu fyrirtæki sem leggur áherslu á öryggi, sjálfbærni, nýsköpun og fjölbreytileika. Við fjárfestum í starfsfólki okkar og bjóðum upp á tækifæri til að byggja upp farsælan starfsferil á sama tíma og við höfum jákvæð áhrif á samfélagið og atvinnulífið.

Hjá Alcoa leitum við að fólki sem deilir okkar gildum:

  • Sýnum umhyggju
  • Störfum af heilindum
  • Stefnum að framúrskarandi árangri
  • Leiðum af hugrekki

Ef þú ert tilbúin/n að leiða mikilvæga innviði á sviði raforku, þróa hæfileikaríkt starfsfólk og leggja þitt af mörkum til reksturs í fremstu röð viljum við heyra frá þér. Sæktu um í dag og taktu þátt í að móta framtíðina með Alcoa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða daglegan rekstur og viðhald rafveitu og háspennukerfa fyrirtækisins.

  • Vera leiðandi afl í rafmagnsöryggi og tryggja að starfsemin uppfylli alþjóðlega staðla Alcoa og íslenskar reglugerðir.
  • Þróa og framfylgja rekstrar- og viðhaldsáætlunum sem tryggja áreiðanlega raforku til álversins.
  • Veita rafvirkjum og tæknifólki faglega leiðsögn og tæknilegan stuðning.
  • Efla og styðja við þróun teymisins með handleiðslu, þjálfun, endurgjöf og hæfniþróun.
  • Stýra viðhaldsverkefnum og forgangsraða verkefnum til að hámarka áreiðanleika búnaðar.
  • Fylgjast með fjárhagsáætlunum og kostnaði og greina tækifæri til umbóta.
  • Viðhalda samstarfi við lykilhagsmunaaðila utan fyrirtækisins, þar á meðal Landsvirkjun, Landsnet og aðra eftirlitsaðila.

  • Leiða og taka þátt í umbótaverkefnum innan ábyrgðarsviðsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun

  • BS-gráða eða hærri menntun í rafmagnsverkfræði eða rafmagnstæknifræði frá viðurkenndum háskóla.
  • Sérhæfing á sviði raforkukerfa, háspennumannvirkja eða skyldra greina.

Reynsla

  • Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla að loknu háskólanámi.

  • Að minnsta kosti tveggja ára reynsla af hönnun, uppsetningu, rekstri eða viðhaldi háspennukerfa.
  • Reynsla úr stóriðju, veitum, orkuframleiðslu, flutningskerfum raforku, námuvinnslu, málmiðnaði, framleiðslu eða úr sambærilegu starfsumhverfi er mjög ákjósanleg.

Þekking og færni

  • Góð þekking á raforkukerfum og rafmagnsöryggi.
  • Reynsla af stjórnun og þróun starfsteyma.
  • Góð samskiptafærni á ensku, bæði í ræðu og riti.
  • Frumkvæði, öflug lausnamiðuð hugsun og góð ákvarðanataka.
  • Hæfni til að byggja upp árangursríkt samstarf við innri og ytri hagsmunaaðila.
  • Sjálfstæð vinnubrögð ásamt hæfni til að stuðla að öflugu teymisstarfi.
Fríðindi í starfi
  • Mötuneyti
  • Fríar rútuferðir til og frá vinnu
  • Heilsutengdir styrkir
  • Velferðaþjónusta
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur25. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar