
Úrvinnslusjóður
Hráefni og orka til vöruframleiðslu eru oft takmarkaðar auðlindir sem ber að fara eins sparlega með og kostur er. Úrvinnslusjóður er ríkisstofnun sem sinnir umsýslu úrvinnslugjalds sem lagt er á vörur og ráðstöfun þess. Úrvinnslugjaldið er notað til að stuðla að sem mestri endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs. Úrvinnslusjóður semur við verktaka um þessa verkþætti á grundvelli verksamninga.

Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Við leitum að öflugum gagnasérfræðingi með brennandi áhuga á gagnadrifinni ákvarðanatöku, sjálfvirknivæðingu ferla og nýtingu tækni til að auka skilvirkni í rekstri. Starfið felur í sér greiningu og vinnslu gagna, þróun sjálfvirkra lausna, uppsetningu mælaborða og samstarf við stjórnendur og starfsmenn um að umbreyta gögnum í verðmæta innsýn.
Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í að þróa og viðhalda sjálfvirkum ferlum, bæta gæði gagna og styðja við stefnumótun og rekstur stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kortleggja og greina rekstrarferla með það að markmiði að finna tækifæri til sjálfvirknivæðingar
- Hanna, þróa og viðhalda sjálfvirkum verkferlum og samþættingu milli kerfa
- Safna, vinna og greina gögn úr ólíkum gagnakerfum
- Byggja upp og viðhalda mælaborðum, KPI-mælingum og skýrslum
- Tryggja gæði, áreiðanleika og samræmi gagna
- Þróa lausnir með Power Platform, SQL, Python eða sambærilegum tækjum
- Stuðla að gagnamenningu innan sjóðsins og veita ráðgjöf um nýtingu gagna
- Fylgjast með þróun á sviði gagnavinnslu, gervigreindar og sjálfvirknilausna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í tölvunarfræði, verkfræði, gagnavísindum eða sambærilegum greinum
- Reynsla af gagnagreiningu og gagnavinnslu
- Góð þekking á SQL og reynsla af Power BI eða sambærilegum greiningarverkfærum
- Skilningur á gagnagrunnum, gagnalíkönum og kerfatengingum
- Reynsla af sjálfvirknivæðingu ferla og notkun lausna á borð við Power Platform eða sambærileg kerfi er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun og umbótaverkefnum er kostur
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Sterk greiningarhæfni og lausnamiðuð nálgun
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi starf á vinnustað sem er í mikilli þróun
- Tækifæri til að leiða verkefni á sviði gagnamála og sjálfvirknivæðingar
- Tækifæri til símenntunar og faglegs vaxtar
- Tækifæri til að taka þátt í umbótum og framþróun í starfseminni
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Sérfræðingur í fjárreiðudeild
Hafnarfjarðarbær