Atmos Cloud
Atmos Cloud
Atmos Cloud

Kerfisstjóri = Geimfari

Hjá Atmos Cloud eru kerfisstjórar geimfarar. Eins og í geimferðum má ekkert út af bregða, allt þarf að vera hárnákvæmt, útpælt og 100% öruggt. Við tengjum saman djúpa tækniþekkingu og leifturhraða svo allt fljúgi snurðulaust.

Við fórum af stað í skýjunum, en í dag stýrum við öllu frá on-prem innviðum og M365/Azure, yfir í sjálfvirkni og gervigreind. Við leggjum mikla áherslu á öryggi og gæði, en leitum að fólki sem nýtir sjálfvirkni frekar en að vinna sama handvirka verkefnið aftur og aftur.

Við leitum að aðila sem getur tekið stjórnina á stórum hluta tæknilandslagsins. En þar sem við erum geimfarar en ekki geimverur (með fimm hendur!), erum við líka alveg til í tvo geimfara með góða verkaskiptingu.

Hlutverkin í geimskipinu:

  • Kerfisstjórnun og traustur rekstur: Daglegur rekstur, eftirlit og viðhald á tækniumhverfi viðskiptavina okkar (M365, Azure og hybrid/on-prem lausnum).

  • AI í daglegu starfi: Gervigreind er nýtt af fimi sem eðlilegur vinnufélagi – hvort sem það er til að hraða úrlausn tæknilegra mála, fínpússa PowerShell-skriftur eða finna snjallari leiðir til að stýra og sjálfvirknivæða skýjaumhverfi. Það er mikill kostur að vera fljótur að tileinka sér nýjustu tólin og líkönin á markaðnum hverju sinni.

  • Sjálfvirknivæðing (Automation): Að finna leiðir til að útrýma endurtekningum í verkefnum. API tengingar og sjálfvirknivæða ferla.

  • Öryggi og eftirlit: Tryggja að kerfi séu uppfærð, örugg og fylgi bestu starfsháttum (Best Practices).

  • Þjónusta og ráðgjöf: Aðstoða viðskiptavini okkar við að finna réttu lausnirnar og útskýra flókna tækni á mannamáli, enga geimlensku hér.

Teymið

Við höfum tölvuleikjahetjur, hlaupara, fjalla- og veghjólara, skíðamenn, fluguveiði-amature-a, ræktarunnendur, hestafólk, sundgarpa og kokka. Öll eigum við það sameiginlegt að vera hamingjusamt fjölskyldufólk sem hlakkar til að fá nýjan vin í hópinn.

Fríðindi
  • Sveigjanlegur vinnutími.

  • Hvatakerfi.

  • Heima internet og farsími.

  • Frábæra vinnuaðstaða í Ármúlanum með kaffi, drykkjum og snakki í úrvalsflokki.

  • Niðurgreiddur hádegismatur.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af kerfisstjórnun: Víðtæk og traust þekking á Microsoft 365 og Azure (reynsla úr MSP umhverfi er mikill kostur).

  • AI-læsi: Þú fylgist vel með þróuninni í AI málum og vinnur með þessi tól daglega í þinni kerfisstjórnun.

  • Sjálfvirkni-genið: Góð þekking á PowerShell, Power platform, Terraform, API tengingum eða öðrum sjálfvirknilausnum.

  • Lausnamiðuð samskipti: Þú getur miðlað tæknilegum lausnum á skýran og þægilegan hátt án þess að missa fólk út í geim.

  • Eldmóður og jákvæðni: Brosið er gjaldmiðill sem hvergi fellur í verði, þú mætir til leiks með góða lund, frumkvæði og vilja til að gera hlutina betur í dag en í gær.

  • Bílpróf og bíll: Fyrir lendingar á staðnum hjá viðskiptavinum.

  • Önnur menntun: Allt sem nýtist á jörðu sem og í geimnum.
Um Atmos Cloud

Við elskum skýjalausnir, til tunglsins og til baka. Atmos Cloud er ört vaxandi fyrirtæki þar sem traust og áreiðanleiki eru í fyrirrúmi. Við erum geimfarar, ekki geimverur – hjá okkur hafa allir rödd og við leggjum mikið upp úr léttleika og góðri þjónustu.

Auglýsing birt3. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 1, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjálfvirknivæðingPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TölvuöryggiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar