Advania
Advania
Advania

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum

Mannauðslausnir Advania leita að öflugum verkefnastjóra til að leiða þróunar- og umbótaverkefni á sviði mannauðslausna. Við leitum að tæknilega sterkum verkefnastjóra sem hefur reynslu af hugbúnaðarþróun, kerfisinnleiðingum eða stafrænum umbreytingarverkefnum. Viðkomandi hefur góðan skilning á upplýsingakerfum, samþættingum og gagnaflæði og nýtur þess að leiða þróun mannauðslausna sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.

Í starfinu munt þú vinna náið með þróunarteymum, ráðgjöfum, vörustjórum og viðskiptavinum við að móta og innleiða lausnir sem skapa virði fyrir íslensk fyrirtæki. Þú verður lykilaðili í að tryggja að verkefni skili tilætluðum árangri.

Mannauðslausnir Advania þróa og þjónusta lausnir sem hjálpa fyrirtækjum að auka árangur og ánægju starfsfólks og stjórnenda. Lausnir okkar eru meðal annars H3, Vinnustund, Bakvörður, Samtal, Flóra, Vera og Matráður og eru notaðar af þúsundum notenda um allt land. Markmið okkar er að skapa meiri tíma fyrir mannlega þáttinn með öflugum og notendavænum lausnum.

Starfssvið

Verkefnastjóri leiðir þróunar- og umbótaverkefni innan Mannauðslausna og vinnur þvert á teymi, í nánu samstarfi við viðskiptavini, ráðgjafa og þróunarteymi. Hlutverkið felur í sér að halda utan um verkefni frá upphafi til enda og tryggja framgang, gæði og árangursríka afhendingu.

Helstu verkefni

  • Leiða þróunar- og umbótaverkefni innan Mannauðslausna.

  • Greina, skilgreina og forgangsraða tæknilegum og viðskiptalegum kröfum í samstarfi við viðskiptavini og þróunarteymi.

  • Halda utan um verkefnaáætlanir, forgangsröðun og framvindu verkefna.

  • Greina þarfir viðskiptavina og umbreyta þeim í skýrar kröfur og verkefni.

  • Fylgja eftir afhendingu og tryggja gæði lausna og þjónustu.

  • Miðla upplýsingum um stöðu verkefna til hagaðila.

  • Taka þátt í mótun framtíðarsýnar og áframhaldandi þróun Mannauðslausna Advania.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af verkefnastjórnun hugbúnaðar og/eða innleiðingarverkefna.

  • Góð tæknileg innsýn og skilningur á hugbúnaðarþróun og upplýsingakerfum.

  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

  • Hæfni til að leiða verkefni áfram og skapa samstöðu meðal hagaðila

Þekking og reynsla

  • Þekking á Agile, Scrum eða sambærilegri aðferðafræði er kostur.

  • Reynsla af kerfisinnleiðingum og þekking á vörustýringu er kostur.

  • Reynsla af mannauðs- eða launamálum er kostur.

  • Þekking á mannauðskerfum, launakerfum eða tengdum rekstrarferlum er kostur.

Mannauðslausnir Advania

Hjá Mannauðslausnum starfar öflugur hópur sérfræðinga með áratuga reynslu af þróun, ráðgjöf og þjónustu á sviði mannauðs- og launamála. Við leggjum metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og þróa lausnir sem einfalda dagleg störf stjórnenda, mannauðsfólks og starfsfólks. Fram undan eru fjölbreytt og metnaðarfull verkefni og því leitum við að verkefnastjóra sem vill hafa áhrif á þróun lausna sem skipta íslensk fyrirtæki og starfsfólk þeirra máli.

Auglýsing birt14. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.SCRUM
Starfsgreinar
Starfsmerkingar