Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central

Business Central ráðgjafi

Það er mikið um að vera hjá Origo og spennandi tímar framundan. Nú leitum við að reynslumiklum ráðgjöfum á sviði Business Central til að bætast í hóp sérfræðinga BC teymis Origo. Sem Business Central ráðgjafi hálpar þú viðskiptavinum Origo að ná árangri, fá betri yfirsýn og ná markmiðum sínum hraðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða innleiðingar á Business Central, á réttum tíma og í takt við þarfir viðskiptavina.

  • Greina þarfir viðskiptavina og veita ráðgjöf um árangursríka notkun.

  • Tryggja góða upplifun notenda með prófunum, þjálfun og námskeiðum.

  • Fylgjast með, tileinka sér og hjálpa viðskiptavinum að nýta nýjungar í Business Central, með sérstakri áherslu á gervigreindarlausnina Bifröst sem Origo hefur byggt ofan á BC.

  • Góð samskipti við viðskiptavini og viðhald viðskiptasambanda.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af ráðgjöf í fjárhagskerfum og bókhaldi nauðsynleg.

  • Mikil reynsla af Business Central: innleiðingum, uppsetningu og sérlausnum.

  • Góð þekking á viðskiptaferlum og hvernig má bæta þá með notkun á BC.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og frumkvæði.

  • B.Sc. gráðu í viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegu æskileg.

  • Vottun í Dynamics 365 Business Central eða tengdri tækni er mikill kostur.

Fríðindi í starfi
  • Framúrskrandi vinnuaðstaða í nýjum, glæsilegum höfuðstöðvum að Dalvegi 30A eða, eftir atvikum, í samvinnurýmum á landsbyggðinni.

  • Sveigjanlegt, fjölskylduvænt vinnuumhverfi.

  • Spennandi verkefni og tækifæri til vaxtar.

  • Stöðug þróun þekkingar.

  • Veglegur velferðarpakki.

  • Aðgengi að líkamsrækt og hvíldarherbergi á vinnustaðnum.

  • Hollur og góður matur í niðurgreiddri mataráskrift og hressing yfir daginn.

  • Samgöngustyrkur.

  • Niðurgreitt internet, farsími og símtækjastyrkur.

  • Kostur á að sækja um í Menntasjóðinn Fremri.

  • Öflugt starfsmannafélag, klúbbastarf og frábærir samstarfsfélagar.

Auglýsing birt13. október 2026
Umsóknarfrestur26. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar