
Garri
Garri er öflugt þjónustufyrirtæki í innflutningi á gæða matvörum, umbúðum og hreinlætislausnum fyrir veitingarekstur, hótel, fyrirtæki og stofnanir.
Við höfum ástríðu fyrir okkar starfi og erum vakandi fyrir nýjungum á markaði, vöruframboði og tæknilausnum. Við leggjum áherslu á sjálfbærni, stöðugar umbætur, ábyrga stjórnarhætti og eflingu mannauðs, með gildi Garra að leiðarljósi. Hjá Garra starfa um 100 manns.

Aðstoðarvöruhússtjóri Garra
Ert þú öflugur leiðtogi með áhuga á skilvirkum rekstri, tækni og stöðugum umbótum?
Við hjá Garra leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum aðstoðarvöruhússtjóra til að taka þátt í daglegum rekstri og áframhaldandi þróun vöruhússins.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem reynir á leiðtogahæfni, skipulag og tæknilega þekkingu. Við leitum að einstaklingi sem hefur gott lag á að leiða fólk, sér tækifæri til umbóta og hefur metnað til að þróa skilvirka verkferla og nýta tæknilausnir til að ná enn betri árangri.
Aðstoðarvöruhússtjóri vinnur náið með vöruhússtjóra og gegnir lykilhlutverki í daglegri verkstýringu, þróun kerfa og innleiðingu umbóta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg verkstýring og eftirfylgni með starfsemi vöruhússins.
- Umsjón með skilvirku vöruflæði, afköstum og gæðum.
- Rekstrarleg umsjón með vöruhúsakerfum, m.a. AX, vöruturnum og dreifingarkerfi.
- Greining og innleiðing umbóta á kerfum, verkferlum og sjálfvirknilausnum.
- Leiðsögn, stuðningur og þjálfun starfsfólks.
- Eftirfylgni með gæða- og öryggiskröfum í daglegum rekstri.
- Náið samstarf við vöruhússtjóra og aðrar deildir fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Marktæk reynsla af vöruhúsarekstri, verkstýringu eða sambærilegri starfsemi.
- Góð reynsla af notkun og umsýslu vöruhúsa- og viðskiptakerfa, ásamt þekkingu á Microsoft Dynamics AX og sjálfvirkum geymslulausnum.
- Reynsla af umbótastarfi og innleiðingu nýrra lausna er skilyrði.
- Sterk leiðtogahæfni og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð greiningarhæfni, frumkvæði og sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.
- Menntun sem nýtist í starfi og lyftararéttindi eru kostur.
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Garra
- Íþrótta- og sálfræðistyrkur
- Árleg heilsufarsmæling og ráðgjöf
- Mötuneyti með hollum og fjölbreyttum mat
- Frábærir samstarfsfélagar & öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt13. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Dynamics AXHönnun ferlaHreint sakavottorðInnleiðing ferlaJákvæðniMannleg samskiptiSamþætting kerfaSjálfvirknivæðingSkipulagTeymisvinnaVaktaskipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Microsoft ráðgjafi
KPMG á Íslandi

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Skógarbær
Hrafnista

Lagerstjóri og lagerstarfsmaður hjá Ormsson
Ormsson ehf

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

AI Solutions Engineer
atNorth

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Senior QA Analyst
Fenris Creations