Ormsson ehf
Ormsson ehf
Ormsson ehf

Lagerstjóri og lagerstarfsmaður hjá Ormsson

Ormsson leitar að tveimur öflugum liðsfélögum: lagerstjóra sem leiðir lagerstarfsemi félagsins og lagerstarfsmanni í fjölbreytt verkefni á lagerum þess.

Á lagerum Ormsson er unnið með fjölbreytt vöruúrval, meðal annars heimilistæki, innréttingar og sjónvörp. Við leitum að áreiðanlegu og drífandi fólki sem leggur metnað í góða þjónustu, vönduð vinnubrögð og gott samstarf.

Lagerstjóri

Við leitum að skipulögðum og framkvæmdaglöðum stjórnanda sem tekur heildarábyrgð á daglegri lagerstarfsemi Ormsson á öllum starfsstöðvum félagsins á höfuðborgarsvæðinu.

Lagerstjóri stýrir starfsfólki, samræmir vinnu milli lagera og tryggir að móttaka, geymsla, flutningur og afhending vara gangi vel fyrir sig. Starfið hentar einstaklingi sem hefur yfirsýn, sýnir frumkvæði og festu í stjórnun og fylgir verkefnum eftir til enda. Viðkomandi þarf jafnframt að taka virkan þátt í verkefnum á gólfinu þegar á þarf að halda.

Lagerstarfsmaður

Við leitum að duglegum og áreiðanlegum einstaklingi í almenn lagerstörf. Starfið er fjölbreytt og felur í sér vinnu á öllum lagerum og starfsstöðvum Ormsson eftir verkefnum hverju sinni, með heimilistæki, innréttingar, sjónvörp og aðrar vörur félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Lagerstjóri

  • Dagleg stjórnun lagera, verkefnaskipting og eftirfylgni ásamt samskiptum við viðskiptavini, starfsfólk og aðrar deildir.

  • Mönnun vakta, vinnuskipulag og yfirferð tímaskráninga í Tímon.

  • Skipulagning vöruflutninga milli starfsstöðva og samræming afhendinga.

  • Umsjón með vörumóttöku, frágangi, tiltekt pantana og afgreiðslu vara.

  • Eftirlit með birgðanákvæmni, skráningum, talningum og úrlausn frávika.

  • Eftirlit og aðhald með aksturs- og flutningskostnaði.

  • Yfirferð og samþykkt reikninga vegna lagerstarfsemi í samræmi við heimildir.

  • Ábyrgð á viðhaldi og eftirliti með bifreiðum sem tengjast lagerstarfseminni.

  • Umsjón með öryggismálum, samskipti við Vinnueftirlitið og eftirfylgni með því að starfsemin uppfylli gildandi kröfur.

  • Þjálfun starfsfólks og umbætur á verklagi, nýtingu lagerrýmis og vinnuskipulagi.

  • Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.

Lagerstarfsmaður

  • Móttaka, yfirferð og frágangur vara.

  • Tiltekt pantana og undirbúningur afhendinga.

  • Afgreiðsla og afhending vara til viðskiptavina og samstarfsfólks.

  • Hleðsla og losun bíla ásamt tilfærslu vara.

  • Aðstoð við vöruflutninga milli starfsstöðva.

  • Birgðatalningar, skráningar og almenn umhirða lagers.

Menntunar- og hæfniskröfur

Lagerstjóri

  • Reynsla af lagerhaldi og verkstjórn eða mannaforráðum.

  • Sterk skipulagsfærni og geta til að forgangsraða í fjölbreyttu starfsumhverfi.

  • Leiðtogahæfni, skýr samskipti og geta til að byggja upp samstilltan hóp.

  • Rekstrarvitund og færni til að fylgjast með kostnaði og finna leiðir til úrbóta.

  • Góð tölvufærni og reynsla af birgða- eða lagerkerfum.

  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður fyrir nákvæmni og góðri þjónustu.

  • Lyftararéttindi eru kostur.

Lagerstarfsmaður

  • Stundvísi, áreiðanleiki og vönduð vinnubrögð.

  • Jákvætt viðmót og góð samstarfs- og þjónustulund.

  • Sveigjanleiki til að sinna ólíkum verkefnum á starfsstöðvum félagsins.

  • Geta til að sinna líkamlegum lagerstörfum með öruggum hætti.

  • Grunnfærni í tölvunotkun.

  • Reynsla af lagerstörfum, ökuréttindi og lyftararéttindi eru kostur.

Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Holtavegur 8, 104 Reykjavík
Lágmúli 6-8 6R, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar