Vélanaust
Vélanaust

Starfsmaður í afgreiðslu hjá Vélanaust

Vélanaust leitar að þjónustulunduðum og jákvæðum einstaklingi til starfa í afgreiðslu. Um er að ræða fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á faglega þjónustu, skipulag og góð samskipti.

Helstu verkefni

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini í verslun
  • Móttaka og skráning á vörum
  • Uppgjör og önnur almenn afgreiðslustörf
  • Leit að varahlutum og aðstoð við viðskiptavini
  • Tiltekt og almenn umsjón með verslunarsvæði

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund og góð samskiptahæfni
  • Góð tölvukunnátta
  • Þekking á bílum og reynsla af partaleit kostur
  • Vandvirkni, skipulögð vinnubrögð og stundvísi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Snyrtimennska og jákvætt viðmót

Vélanaust ehf. var stofnað árið 2009 með það að markmiði að bjóða sérhæfða varahluti fyrir vinnuvélar, rútur og vörubifreiðar á hagstæðu verði. Frá stofnun hefur fyrirtækið lagt áherslu á vandaða þjónustu og faglega ráðgjöf. Starfsmenn okkar búa yfir víðtækri þekkingu á sviði vinnuvéla, rútu- og vörubifreiða og leggja metnað í að finna réttar lausnir fyrir viðskiptavini.
Vélanaust er systurfélag VélRásar og Véltinda og er staðsett í Hafnarfirði, hátt í 100 manns starfa hjá félaginu og tengdum félögum.

Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur6. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Álhella 8, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar