

Áfylling í verslanir og almenn lagerstörf.
Við leitum að duglegum og áreiðanlegum starfskrafti til að taka niður pantanir og sinna áfyllingu í verslunum endursöluaðila ásamt almennum lagerstörfum í Tinnu ehf.
Starfið er fjölbreytt og hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af því að vera á ferðinni, vinnur sjálfstætt og leggur metnað í verkefni dagsins.
Mikilvægt er að starfsmaður hafi reynslu/gott auga fyrir framsetningu og góða tilfinningu fyrir að stýra vöruframboði í verslunum sem Tinna þjónustar.
Hvað felst í starfinu:
- Taka niður pantanir, áfylling og uppröðun á vörum Tinnu í verslunum endursöluaðila
- Tiltekt á pöntunum á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni, netpantanir
- Taka upp vörusendingar frá erlendum birgjum, símsala
- Fara með pantanir á Landflutninga, í Póstinn/Dropp og fara í Sorpu. Einnig ýmis önnur tilfallandi störf innan fyrirtækisins.
Við erum að leita að snöggum og liprum einstaklingi sem er til í að ganga í öll verkefni með bros á vör. Nauðsynlegt að vera líkamlega vel á sig kominn því starfið felst fyrst og fremst í að flytja þunga kassa og það þarf liðleika og gott bak í að setja upp áfyllingar í verslanir.
Bílpróf er nauðsynlegt og að hafa góða reynslu af akstri innan- og utanbæjar. Almenn tölvukunnátta æskileg og þekking/áhugi á prjónaskap.
Vinnutími er: 9:00 - 16:00 mán - fim og 9:00 -15:00 fös. Boðið er upp á léttan hádegisverð.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst!
Hlökkum til að heyra frá þér!
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Sveiganleiki og geta unnið undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
- Snyrtmennska, góð framkoma og reykleysi.
- Létt hádegissnarl, kaffi
Íslenska
Enska










