

Starfsmaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg leitar að starfsmanni í Vettvangs- og ráðgjafateymi (VoR-teymið innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir). Um er að ræða nýtt, tímabundið stöðugildi til eins árs sem verður til í tengslum við samstarfssamning milli Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðarbæjar. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgarvöktum. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR) aðstoðar heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VoR veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning á vettvangi. Starfsmaður í þessu stöðugildi kemur til með að sinna sérstaklega þjónustu við einstaklinga frá Hafnarfirði sem þurfa sérhæfðan stuðning. Mikið samstarf verður með sértækri heimaþjónustu íHafnarfirði.
VoR teymið veitir ákveðnum hópi fólks í sjálfstæðri búsetu stuðning og ráðgjöf í anda hugmyndafræðinnar um Húsnæði fyrst. Í þjónustunni er tekið mið af skaðaminnkandi nálgun með virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti einstaklinga að leiðarljósi og til að draga úr skaðlegum áhrifum jaðarsetningar og draga úr skaðsemi og áhættu sem geta fylgt vímuefnanotkun.
- Samstarf og samvinna við sértæka heimaþjónustu í Hafnarfirði.
- Upplýsingamiðlun og fræðsla milli teyma.
- Veita jaðarsettum hópi fólks stuðning í sjálfstæðri búsetu og ráðgjöf undir formerkjum Húsnæði fyrst hugmyndafræðinnar.
- Veita einstaklingum sem glíma við heimilisleysi stuðning á vettvangi.
- Virkt notendasamráð – notandi sérfræðingurinn.
- Veita íbúum/notendum heildstæða þjónustu í nærumhverfi sínu samkvæmt einstaklingsáætlun.
- Stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku og virkni.
- Stuðningur við samskipti við stofnanir.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæri fyrir notendur.
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með jaðarsettum einstaklingum með fjölþættan vanda.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þekking eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun, sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og frumkvæði.
- Sveigjanleiki, þolinmæði og umburðarlyndi.
- Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Ökuréttindi.
- Stytting vinnuvikunnar
- Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
- Sund- og menningarkort
Íslenska















