Arnheiður og Árdís NPA
Arnheiður og Árdís NPA

AÐSTOÐARKONA ÓSKAST – NPA

AÐSTOÐARKONA ÓSKAST – NPA

Okkur vantar góða, heilsuhrausta, jákvæða og áreiðanlega aðstoðarkonu í NPA-teymið hjá 16 ára tvíburasystrum sem eru á fyrsta ári í framhaldsskóla.

Systurnar eru hressar, skemmtilegar og félagslyndar og hafa gaman af því að spjalla, hlæja og spila. Þær nota rafmagnshjólastóla og þurfa aðstoð við flesta hluti í daglegu lífi.

Vinnutímabil: september - maí (skóladagar) nema um annað sé samið.

Vinnutími: virkir skóladagar frá kl. 7:50–15:50 nema um annað sé samið.

Starfið er mjög fjölbreytt og enginn dagur er því alveg eins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Dæmigerð vinnuvika

  • Aðstoða systur á morgnana og koma þeim af stað í daginn
  • Keyra þær í skólann á bílnum þeirra – yfirleitt um kl. 8:15
  • Sækja þær í skólann um kl. 13
  • Vera til taks ef þarf að sækja aðra hvora eða báðar fyrr í skólann
  • Aðstoða við matmálstíma eftir skóla
  • Keyra í tómstundir, íþróttaæfingar og aðrar athafnir eftir skóla
  • Aðstoða þær á íþróttaæfingum
  • Fylgja í læknisheimsóknir og sjúkraþjálfun
  • Aðstoða við persónulega umönnun og aðrar daglegar athafnir

Akstur er stór hluti af starfinu. Þær eru með stóran bíl sem aðstoðarkona þarf að keyra en hann er mun auðveldari í akstri en hann lítur út fyrir að vera. Það er því mikilvægt að aðstoðarkona sé tilbúin að keyra hann.

Eiginleikar sem við leitum eftir í aðstoðarkonu:

  • 20 ára eða eldri
  • stundvís
  • heilsuhraust
  • þolinmóð
  • hlýleg, jákvæð og þægileg í samskiptum
  • hefur gaman af því að vera í kringum unglinga
  • samviskusöm og áreiðanleg
  • íslenskumælandi
  • með bílpróf
  • með hreint sakarvottorð
  • reyklaus og veiplaus

Það er mikill kostur að finnast skemmtilegt að spila og spjalla!!

Við búum í Mosfellsbæ og er starfið unnið eftir hugmyndafræði NPA um sjálfstætt líf.

Allar frekari upplýsingar fást hjá Söru Birgisdóttur
[email protected]

Með umsókn skulu ferilskrá og meðmæli fylgja með.

Við hlökkum til að heyra frá þér!

Auglýsing birt15. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Veiplaus
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar