
Læknastofur Reykjavíkur
Læknastofur Reykjavíkur eru staðsettar í glæsilegu húsnæði að Efstaleiti 27c, með móttökur og fullbúnar skurðstofur. Við sérhæfum okkur í lýtaaðgerðum og fegrunarmeðferðum þar sem fagmennska og öryggi eru í fyrirrúmi. Við leggjum ríka áherslu á að veita framúrskarandi, einstaklingsmiðaða þjónustu byggða á faglegri þekkingu og áralangri reynslu. Markmið okkar er að mæta þörfum skjólstæðinga og tryggja jákvæða, örugga og faglega upplifun í hlýlegu og traustu umhverfi.

Aðstoðarmaður á læknastofur
Við leitum að áreiðanlegum, metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa sem aðstoðarmaður á læknastofum okkar.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, góða þjónustu, og jákvæð samskipti. Starfið felur aðallega í sér þrif og sótthreinsun áhalda og tækja, þrif og umhirðu stofunnar ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Starfshlutfall er 70% eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg þrif og sótthreinsun áhalda og tækja
- Þrif og umhirða stofunnar
- Undirbúningur og frágangur vinnusvæða ásamt því að halda þeim snyrtilegum og öruggum.
- Aðstoða samstarfsfólk og skjólstæðinga eftir þörfum
- Almenn þjónusta og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
- Skipulögð og vandvirk vinnubrögð
- Stundvísi og smaviskusemi
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Auglýsing birt12. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 27c
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinnaVandvirkniVinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Snyrtivöruráðgjafi í Beautybox
Beautybox

Sölumaður hjá Fífa barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Sölumaður í hlutastarf hjá Fífu barnavöruverslun
Fífa barnavöruverslun

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Nettó Aðaltorgi snyrtivörudeild - NÝ VERSLUN
Nettó

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Afgreiðsla í Akureyrarapóteki
Akureyrarapótek ehf.

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Starfsmaður í bakari (afgreiðsla)
Lindabakarí

Fullt starf inn á lager - Full time position – Join Our Stockroom Team
Zara Smáralind