
ÍSBAND verkstæði og varahlutir
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf) er umboðs- og dreifingaraðili fyrir vörumerkin Jeep, RAM, Fiat, Fiat Professional, Alfa Romeo, Chrysler og Dodge á íslandi og nýlega bættist Leapmotor við. Hjá ÍSBAND eru nú um 40 stöðugildi.ÍSBAND bílaverkstæði sinnir ofantöldum vörumerkjum sem og 33"-40" breytingum á Jeep og RAM. Varahlutaverslunin flytur inn varahluti frá ofangreindum vörumerkum, öðrum USA merkjum og aukahluti. ÍSBAND er umboðsaðili fyrir AEV, Teraflex, Falcon, ARE og Bakflip. Verkstæði og varahlutaverslun eru í rúmgóðu húsnæði að Smiðshöfða 5, 110 Reykjavík þar sem góð aðstaða er til að taka á móti stórum pallbílum og húsbílum. Söludeild er staðsett í Þverholti í Mosfellsbæ.

Þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
Vegna aukinna umsvifa leitum við að þjónustufulltrúa í verkstæðismóttöku.
Starfið felur í sér fjölbreytt og þjónustumiðað hlutverk þar sem dagleg samskipti við viðskiptavini eru í fyrirrúmi.
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi sem hefur ánægju af mannlegum samskiptum og vill taka þátt í að veita faglega og persónulega þjónustu.
Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf í ört vaxandi fyrirtæki þar sem ríkir góður starfsandi. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við viðskiptavini verkstæðis og varahlutaverslunar
- Tímabókanir og innritun ökutækja í samráði við verkstjóra
- Lokun verkbeiðna og eftirfylgni verka
- Útgáfa reikninga og móttaka greiðslna við afhendingu ökutækja
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta
- Lipurð og fagmennska í samskiptum
- Góð þjónustulund og jákvætt viðmót
Fríðindi í starfi
- Heitur hádegismatur
- Öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur24. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Smiðshöfði 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiÖkuréttindiReikningagerðUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Lyfja

Lyfja Granda - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka