Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Laugarvörður-baðvörður-afgreiðslustarf - Kópavogslaug

Laugarvörður-baðvörður-afgreiðsustarf - Kópavogslaug

Laust er til umsóknar starf við laugarvörslu, þrif og baðvörslu í búningsklefum og í móttöku sundlaugarinnar. Unnið er á vöktum virka daga. Vaktirnar eru klukkan 06:15 – 14:15 og klukkan 14:05 - 22:30. Þá er ein helgarvakt (laugardagur og sunnudagur) klukkan 07:45 – 18:30 (07:45 - 20:30 milli 1. maí og 30. september), á hverjum fjórum vikum. Verið er að skoða breytingar á opnunartíma.

Kópavogslaug er staðsett í vesturbæ Kópavogs, stutt frá Hamraborginni með góðar almenningssamgöngur. Kópavogslaug er einn stærsti sundstaður landsins. Þar eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum potti, gufubaði og rennibrautum. Hjá lauginni starfa á fjórða tug manna við þjónustustörf og öryggisgæslu.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
  • Um tímabundið starf er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Allgóð sundkunnátta áskilin. Umsækjendur þurfa að standast sundpróf svipað og tekið er í 10. bekk grunnskóla.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og vera reglusamir, samviskusamir, vinnusamir, þjónustulundaðir og góðir í samskiptum.
  • Starfið hentar ekki síður þeim sem eru komnir á og yfir miðjan aldur en þeim sem yngri eru.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Framvísa verður sakavottorði

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipta má störfum starfsmanna sundlaugarinnar í þrjú svið,

ÖRYGGI, ÞRIF og ÞJÓNUSTU.

Starfið fer fram á einhverjum af þessu starfsstöðum:

Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.

Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum.

Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit. Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.

Frekari upplýsingar:

Nú þegar vantar starfsfólk í búningsklefa kvenna.

Ráðið verður í stöðuna sem fyrst.

Mikilvægt er að upplýsingar um meðmælendur fylgi umsókn.

Góð launakjör samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Stefánsson starfandi forstöðumaður Kópavogslaugar í síma 8635913 eða í netfanginu [email protected]

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar - Líkamsræktaraðstaða

Auglýsing birt12. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SundPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar