
Áltak
Áltak er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingamarkaði og hefur verið það frá stofnun þess árið 1997. Alla tíð hefur megin áhersla fyrirtækisins verið að veita heildarlausnir í álklæðningum og undirkerfum. Fyrirtækið hefur farið ört stækkandi og vöruframboð aukist til muna. Í dag býður Áltak upp á heildarlausnir í kringum klæðningar, hljóðvist, steypumót, iðnaðarhurðir, vöruhúsarekka og margt fleira. Markmiðið er að bjóða eingöngu upp á gæðaefni sem standast íslenskar aðstæður og hafa endingartíma sem mældur er í áratugum.
Áltak er hluti af Fagkaupum sem rekur verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, K.H. Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk og Fossberg. Fagkaup á 70% hlut í DS Lausnum.
Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 einstaklingar og aðsetur fyrirtækjana er í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og á Akureyri.
Fyrirtækið leggur áherslu á góða vinnustaðamenningu, samstöðu og samheldni meðal starfsfólks. Unnið er eftir jafnréttis og jafnlaunastefnu félagsins sem einnig hefur hlotið jafnlaunavottun.
Þá er unnið samkvæmt mannauðsstefnu Fagkaupa þar sem tækifæri eru til starfsþróunnar og vaxtar í starfi með m.a. öflugu fræðslustarfi og fjölbreyttum störfum innan fyrirtækisins. Áhersla lögð á jákvætt, hvetjandi og öruggt starfsumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er haft að leiðarsljósi.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.

Þjónustufulltrúi í vöruhús Áltaks
Áltak óskar eftir að ráða kraftmikinn starfsmann í vöruhús Áltaks að Fossaleyni. Um er að ræða 100% framtíðarstarf og vinnutími er frá 8.00-16.00
Meginhlutverk þjónustufulltrúa í vöruhúsi eru almenn vöruhúsastörf en starfsmaður sinnir vöruafgreiðslu til viðskiptavina, vörumóttöku og sér til þess að frágangur sé réttur og í samræmi við kröfur. Starfið felur einnig í sér tiltekt og önnur tilfallandi verkefni.
Umsóknarfrestur er til 5.okt. 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka á vörum
- Vörutýnsla og pantarnir/ pökkun
- Losun gáma
- Sífellt umbótarstarf þar sem skilvirkni og góð þjónusta til viðskiptavina er í forgangi.
- Tryggja öryggi vinnuumhverfis og fylgja eftir öryggisstöðlum með öryggi starfsmanna að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund
- Öguð og vönduð vinnubrögð
- Stundvísi og góð framkoma
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf og lyftarapróf æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af vinnu í vöruhúsum er kostur
Fríðindi í starfi
Líkamsræktarstyrkur
Samgöngustyrkur
Niðurgreiddur hádegismatur
Öflug félagslíf og virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fossaleynir 8, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HandlagniHreint sakavottorðLagerstörfÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSmíðarÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður á þurr- og frystilager
Emmessís ehf.

Starfsmaður í afgreiðslu hjá Vélanaust
Vélanaust

Starfsmaður í verkstæðismóttöku
Vélrás

Leitum að öflugum liðsfélaga í verslun okkar á Akureyri
Stilling

Áfylling í verslanir og almenn lagerstörf.
TINNA heildverslun

Vaktstjóri í vöruhúsi
Coca-Cola á Íslandi

Lagerstarfsmaður
Góa-Linda sælgætisgerð

Lagerstarf
Mekka Wines & Spirits hf

Verkamaður - Járnavinna / Metalworker
Íslenska gámafélagið ehf.

Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur.
Nettó

Umsjónarmaður fasteigna og tækja.
Bónus

Starfsmaður í skipaafgreiðslu á Reyðarfirði
Eimskip