
Raftækjalagerinn
Raftækjalagerinn er hluti af Heimilistækjasamstæðunni en auk lagersins rekur fyrirtækið verslanirnar Heimilistæki, Tölvulistann, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðina, heildsöluna Ásbjörn Ólafsson og verkstæði.
Raftækjalagerinn er vöruhús allra félaganna og sér um að halda góðu skipulagi á vörum og birgðum hvers félags fyrir sig. Lagerinn okkar er með stærsta smásöluróbót landsins sem tekur ríflega 37 þúsund kassa. Viðskiptavinir sem kaupa stór heimilistæki geta sótt vörurnará lagerinn og starfsfólk Raftækjalagerins sér um heimsendingarþjónustu stórra tækja á höfuðborgar-svæðinu. Þá sér lagerinn sér einnig um að afgreiða út netpantanir og endurnýja birgðir í verslunum.
Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 einstaklinga í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Starfsmaður í vöruhús
Leitar þú að starfi þar sem dagarnir líða hratt og þú vinnur með góðu teymi?
Heimilistæki leitar að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi í lagerstarf þar sem áhersla er lögð á skipulag, þjónustu og gott samstarf.
Vinnutími
- Virkir dagar kl. 8:00–16:00 tvær af hverjum þremur vikum.
- Þriðja vikan kl. 10:00–18:00.
- Helgarvaktir samkvæmt samkomulagi.
Hvað felst í starfinu?
- Almenn lagerstörf og dagleg umsjón með vöru.
- Móttaka og frágangur sendinga.
- Tiltekt pantana og undirbúningur afhendinga.
- Vöruafhending og þjónusta við viðskiptavini.
- Lestun og losun á vörum.
- Tryggja gott skipulag og skilvirk vinnubrögð.
Við leitum að starfsmanni sem:
- Tekur ábyrgð og hefur góð vinnubrögð.
- Er jákvæður í samskiptum og þjónustulundaður.
- Getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi.
- Sýnir frumkvæði og sér hvað þarf að gera.
- Mætir stundvíslega og fylgir verkefnum eftir.
- Hefur góða íslenskukunnáttu.
Kröfur:
- Lyftarapróf er kostur.
- 20 ára eða eldri.
- Hreint sakavottorð.
Af hverju þetta starf?
- Sterkt teymi og gott vinnuumhverfi.
- Skýr ábyrgð og góð yfirsýn yfir vinnuna.
- Góð reynsla sem nýtist víðar.
Auglýsing birt28. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 21, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðReyklausSjálfstæð vinnubrögðStundvísiTóbakslausVeiplausÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Nettó Hrísalundi - umsjón
Nettó

Kjörbúðin Akureyri - hlutastarf
Kjörbúðin

Dreifingarmiðstöð - lagerstarfsmaður
Vínbúðin

Áfylling í verslanir og almenn lagerstörf.
TINNA heildverslun

Starfsmaður í vöruhús JYSK - Hlutastarf kl 18-22 virka daga
JYSK

Óskum eftir starfskrafti á lager og í útkeyrslu
Oriens ehf.

Þjónustu og sölufulltrúi óskast til Johan Rönning
Johan Rönning

Starfsmaður á þurr- og frystilager
Emmessís ehf.

Þjónustufulltrúi í vöruhús Áltaks
Áltak

Starfsmaður í afgreiðslu hjá Vélanaust
Vélanaust

Starfsmaður í verkstæðismóttöku
Vélrás