

Þjónustu og sölufulltrúi óskast til Johan Rönning
Johan Rönning óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í þjónustu og sölustarf í verslun sína að Klettagörðum 25. Um 100% starf er að ræða og er vinnutími samkomulag.
Starfið er fjölbreytt og lifandi og krefst ríkrar þjónustulundar og færni í mannlegum samskiptum.
Johan Rönning er í dag hluti af Fagkaup ehf. sem rekur einnig verslunar- og þjónustufyrirtækin Sindra, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, Áltak, K.H. Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk, Fossberg, K. Þorsteinsson og co og DS Lausnir.
Höfuðstöðvar félagsins eru við Klettagarða 25 í Reykjavík en starfseiningar eru víða t.d. á Akureyri, á Selfossi, Grundartanga, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Hafnafirði og Kópavogi. Rúmlega 300 starfsmenn vinna hjá Fagkaupum í fjölbreyttum störfum ólíkra starfsstöðva og fyrirtækja.
Ef þú ert tilbúin/n að veita frábæra þjónustu til viðskiptavina og með reynslu af sölu og þjónustustörfum þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Umsóknarfrestur er ti 10.okt. 2026
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð aldri, kyni eða uppruna.
- Almennt afgreiðslustarf og móttaka viðskiptavina í verslun
- Tiltekt pantana
- Áfyllingar í verslun
- Tiltekt og önnur tilfallandi verkefni
- Rík þjónustulund
- reynsla af þjónustu og/ eða sölustarfi er kostur
- Stundvísi og góð framkoma
- Góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Snyrtimennska
- 20 ára aldurstakmark
- Öguð og vönduð vinnubrögð
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Öflugt starfsmannafélag
Að auki bjóðum við:
- Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
- Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
- Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
- Afsláttarkjör af vörum félagsins
- Sveigjanlegt starfsumhverfi
- Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi
Íslenska
Enska










