Sorpstöð Rangárvallasýslu
Sorpstöð Rangárvallasýslu
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða öflugan og jákvæðan móttöku- og þjónustufulltrúa við Móttökustöðina á Strönd. Um er að ræða fjölbreytt og þjónustumiðað starf sem felst einkum í umsjón með móttöku viðskiptavina og úrgangs. Um er að ræða hlutastarf og er vinnutími frá kl. 13-17 alla virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með móttöku viðskiptavina
  • Leiðbeiningar um losun úrgangs
  • Greiðslu- og úrgangsskráningar
  • Símsvörun og önnur samskipti við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd daglegum rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta
  • Enskukunnátta
  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Sjálfstæði og áreiðanleiki í starfi
Fríðindi í starfi

Um er að ræða metnaðarfullt starf í umhverfis- og þjónustutengdu starfsumhverfi á traustum og góðum vinnustað. Starfið hentar öllum kynjum og eru áhugasöm hvött til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps sem þjónustar alla Rangárvallasýslu. Þar starfa um 8 starfsmenn í föstu starfi auk 2-3 í hlutastarfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Haukur Þórðarson, framkvæmdastjóri [email protected] eða í síma 843 5375. Umsóknarfrestur er til og með 10. okt. 2026. Ásamt umsókn skal fylgja starfsferilsskrá/kynning. Senda skal umsóknir á [email protected]

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt28. september 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strönd 164556, 851 Hella
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar