

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja leitar eftir þjónustuliprum og ábyrgum aðila í hlutverk gestgjafa hjá fyrirtækinu.
Gestgjafar gegna veigamiklu hlutverki í að tryggja framúrskarandi þjónustu og að upplifun viðskiptavina Öskju sé til fyrirmyndar. Gestgjafar taka á móti og bjóða viðskiptavini velkomna, hafa umsjón með sýningarsal og sinna fjölbreyttum verkefnum tengdum sölu og þjónustu.
Starfið er fjölbreytt og tengist flestum deildum Öskju. Gestgjafi þarf að vera öruggur í samskiptum, lausnamiðaður og geta tekist á við fjölbreytt og einnig krefjandi mál með viðskiptavinum.
Gestgjafar Öskju starfa á Krókhálsi 11 (Mercedes Benz og Smart) og á Krókhálsi 13 (KIA og Honda). Mikil tenging er á milli húsanna og samstarf náið þar sem gestgjafar geta unnið þvert á vörumerki
- Móttaka og almenn þjónusta viðskiptavina
- Umsjón með sýningarsal og fundarherbergjum (Létt þrif, frágangur og umsjón með þrifum)
- Umsjón og aðstoð við snjall-lyklabox
- Aðstoð við undirbúning og framkvæmd sýninga og viðburða
- Ýmis verkefni sem styðja við sölu og þjónustu
- Samskipti við birgja pantanir og annað tilfallandi
- Reynsla af þjónustustörfum
- Góð samskiptahæfni og lausnamiðað hugarfar
- Áhugi og þekking á bílum er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Fagleg framkoma, snyrtimennska og stundvísi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
- Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
- Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Íslenska
Enska










