

Þjónusturáðgjafi
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til liðs við teymi viðskiptatengsla (Customer Relations). Hjá Teya hjálpum við fyrirtækjum að einfalda reksturinn með snjöllum greiðslu- og hugbúnaðarlausnum sem skapa raunverulegt virði í daglegum rekstri.
Sem þjónusturáðgjafi verður þú í daglegum samskiptum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina og aðstoðar þá við að leysa þau mál sem upp koma í tengslum við þjónustu og lausnir Teya. Starfið er fjölbreytt og felur í sér ráðgjöf, úrlausn mála og eftirfylgni, auk náins samstarfs við samstarfsfólk innan Teya. Þú verður mikilvægur hluti af upplifun viðskiptavina okkar og framlínu fyrirtækisins á Íslandi.
Starfið er fullt starf og unnið er á hefðbundnum skrifstofutíma, mánudaga til föstudaga, með möguleika á bakvöktum.
- Svara fyrirspurnum og aðstoða viðskiptavini í gegnum síma, tölvupóst og netspjall
- Greina þarfir viðskiptavina og finna viðeigandi lausnir
- Fylgja málum eftir og tryggja góða upplifun viðskiptavina
- Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við viðskiptavini
- Koma sjónarmiðum og þörfum viðskiptavina á framfæri innan Teya
- Vinna náið með samstarfsfólki innan teymisins og öðrum teymum Teya
- Rík þjónustulund og metnaður fyrir góðri upplifun viðskiptavina
- Góð samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun
- Hæfni til að vinna vel með öðrum og leggja sitt af mörkum til sterkrar liðsheildar
- Góð skipulagshæfni
- Forvitni, lærdómsvilji og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
- Gjaldfrjálst aðgengi að léttu fæði á vinnutíma
- Niðurgreiddur hádegismatur í mötuneyti
- Árlegur íþróttastyrkur
- Árlegt heilsufarsmat og stuðningur við andlega heilsu
- Tækifæri til að læra, þróast í starfi og byggja upp reynslu innan alþjóðlegs fyrirtækis
- Góður starfsandi, reglulegir viðburðir og virkt starfsmannafélag
Enska
Íslenska










