
Framkvæmdastjóri mannauðs - Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra mannauðs. Leitað er að einstaklingi með víðtæka reynslu og þekkingu á mannauðsmálum, ríka leiðtogahæfni og áhuga á að þróa áfram öflugt og faglegt starfsumhverfi. Starfið býður uppá fjölbreytt og krefjandi verkefni og tækifæri til að hafa veruleg áhrif á þróun mannauðsmála og starfsumhverfis hjá einum stærsta vinnustað Austurlands.
Framkvæmdastjóri mannauðs er hluti af framkvæmdastjórn HSA og gegnir lykilhlutverki í stefnumótun stofnunarinnar, þróun vinnustaðamenningar og uppbyggingu mannauðs. Starfið felur í sér náið samstarf við forstjóra, stjórnendur og starfsfólk þvert á 14 starfstöðvar HSA, en hjá stofnuninni starfa um 480 manns.
Nánari upplýsingar um starfsemi HSA má finna á www.hsa.is.
Staðan er laus frá 1. nóvember eða eftir nánara samkomulagi.
- Ber rekstrarlega, faglega og mannauðslega ábyrgð á starfssviði mannauðsmála.
- Mótar og leiðir stefnu og faglega mannauðsstjórnun HSA í samræmi við stefnu og markmið stofnunarinnar.
- Tryggir faglegt og samræmt verklag við ákvörðunartöku og framkvæmd mannauðsmála.
- Veitir stjórnendum ráðgjöf og stuðning í mannauðs-, stjórnunar- og kjaramálum.
- Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk þegar kemur að mannauðsmálum.
- Hefur umsjón með stofnunarsamningum og framkvæmd launasetningar skv. kjarasamningum í samstarfi við stjórnendur og launafulltrúa.
- Leiðir þróun fræðslumála og styður við uppbyggingu öflugrar stjórnendamenningar.
- Yfirumsjón með jafnlaunakerfi, jafnréttisáætlun og skýrslugjöf til Jafnréttisstofu.
- Hefur umsjón með árangursmælingum á sviði mannauðsmála og vinnur að stöðugum umbótum.
- Tekur virkan þátt í stefnumótun, rekstri og langtímaþróun stofnunarinnar sem hluti af framkvæmdastjórn HSA.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði. Framhaldsmenntun á háskólastigi er æskileg.
- Víðtæk reynsla af mannauðsmálum og þekking á mannauðsstjórnun er skilyrði.
- Stjórnunarreynsla er æskileg.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi ásamt getu til að leiða og hrinda breytingum í framkvæmd.
- Frumkvæði, áreiðanleiki, skipulagshæfni, jákvætt viðmót og lausnarmiðuð nálgun.
- Þekking og reynsla af kjaramálum, vinnurétti og opinberri stjórnsýslu er æskileg.
- Reynsla af stefnumótun, breytingarstjórnun og/eða umbótaverkefnum er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta.
- Mjög góð hæfni í tjáningu í ræðu og riti.
Íslenska
Enska










