

Framkvæmdastjóri hjúkrunar
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra hjúkrunar. Um er að ræða krefjandi og áhrifamikið leiðtogahlutverk í íslensku heilbrigðiskerfi í einu stærsta og fjölbreyttasta heilbrigðisumdæmi landsins.
Leitað er að öflugum, framsýnum og metnaðarfullum stjórnanda með sterka faglega sýn, sem vill leiða heilbrigðisþjónustu HSU áfram í takt við síbreytilegt heilbrigðisumhverfi og auknar kröfur um gæði, öryggi og nýsköpun.
Starfið felur í sér faglega forystu, stefnumótun og þróun hjúkrunarþjónustu HSU. Framkvæmdastjóri hjúkrunar ber faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu stofnunarinnar og gegnir lykilhlutverki í stefnumótun, rekstri, þjónustuþróun og innleiðingu breytinga þvert á stofnunina.
HSU veitir víðtæka og samþætta heilbrigðisþjónustu um allt Suðurland á sviði heilsugæslu, sjúkrahús- og göngudeildarþjónustu, hjúkrunarþjónustu og sjúkraflutninga. Stofnunin gegnir lykilhlutverki í opinberri heilbrigðisþjónustu og stendur frammi fyrir spennandi áskorunum þar sem reynsla, faglegt innsæi og framsýni skiptir sköpum.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar er hluti af framkvæmdastjórn HSU, heyrir beint undir forstjóra og hefur áhrif á faglega stefnu stofnunarinnar.
-
Móta og leiða faglega stefnu hjúkrunarþjónustu í samræmi við markmið og framtíðarsýn HSU
-
Ber ábyrgð á rekstri, mannauði og samhæfingu þjónustu þvert á stofnunina
-
Tryggja gæði, öryggi og samræmi hjúkrunarþjónustu á öllum starfseiningum HSU
-
Stuðla að innleiðingu klínískra leiðbeininga og staðlaðra verklagsreglna
-
Efla faglega þróun, menntun og starfsþróun hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta
-
Taka virkan þátt í stefnumótun, rekstri og langtímaþróun stofnunarinnar sem hluti af framkvæmdastjórn
-
Efla samvinnu milli fagsviða og heilbrigðisstétta og stuðla að virkri og árangursríkri teymisvinnu
-
Vera faglegur ráðgjafi hjúkrunarfræðinga og stjórnenda og tengiliður við aðrar heilbrigðisstofnanir
-
Stuðla að nýsköpun, umbótum og aukinni skilvirkni í þjónustu
-
Hjúkrunarfræðingur með framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
-
Víðtæk reynsla af klínísku starfi er æskileg
-
Víðtæk reynsla af stjórnunarstörfum og/eða leiðtogahlutverki er æskileg
-
Þekking og reynsla af rekstri og skipulagi heilbrigðisþjónustu er æskileg
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma
-
Sterkir leiðtogahæfileikar og geta til að hrinda breytingum í framkvæmd
-
Frumkvæði, áræðni og skipulagshæfni
-
Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta
-
Mjög góð hæfni í tjáningu í ræðu og riti
-
Framsýn hugsun, skýr framtíðarsýn og metnaður til að leiða þróun heilbrigðisþjónustu í samræmi við sýn, gildi og stefnu HSU
Íslenska
Enska










