

Forstöðuhjúkrunarfræðingur legudeilda á bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf forstöðuhjúkrunarfræðings legudeilda. Forstöðuhjúkrunarfræðingur starfar innan bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu og leiðir hjúkrunarþjónustu legudeilda og tengda starfsemi.
Innan lyflækningaþjónustu bráða-, lyflækninga- og endurhæfingaþjónustu eru 18-20 rúma legudeildir, tvær almennar lyflækningardeildir auk sérgreina smitsjúkdóma, lungna, tauga, meltingar, nýrna og bráða öldrunar.
Hlutverk forstöðuhjúkrunarfræðings er að þróa þjónustu við sjúklinga innan legudeilda þjónustunnar og vinna að samhæfingu við aðra starfsemi spítalans í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala.Forstöðuhjúkrunarfræðingur heyrir undir framkvæmdastjóra og er hluti af sviðsstjórn sem ber ábyrgð á stefnumótun og rekstri.
Forstöðuhjúkrunarfræðingur leiðir ásamt forstöðulækni teymi framlínustjórnenda, þ.e. yfirlækna og deildarstjóra, sem hafa það sameiginlega verkefni að samhæfa, efla og þróa þá þjónustu sem veitt er á öruggan, faglegan og hagkvæman hátt. Forstöðuhjúkrunarfræðingur ber ríkar og gagnkvæmar skyldur til samvinnu, samráðs og uppbyggingar teymisvinnu.
Leitað er að kraftmiklum leiðtoga, með klínískan bakgrunn, sem hefur brennandi áhuga á að byggja upp sterka liðsheild og framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.
Um er að ræða 100% starf. Auk stjórnunarhlutverks er gert ráð fyrir þátttöku í klínísku starfi í samráði við framkvæmdastjóra.
Íslenska
Enska




























































