

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Forstöðumaður tækni og hönnunar leiðir sérfræðiteymi sem gegnir lykilhlutverki í þróun tæknilegra lausna, hönnunarforsendna og innleiðingu stafrænna tengivirkja fyrir flutningskerfi framtíðarinnar. Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi á sviði Framkvæmda og eignastýringar og tekur þátt í að móta stefnu, forgangsröðun og þróun starfseminnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og þróa teymi tækni og hönnunar
- Móta stefnu, verklag og hönnunarforsendur fyrir flutningsmannvirki Landsnets
- Leiða innleiðingu og þróun stafrænna tengivirkja
- Leiða þróun mæla-, stjórn- og varnarbúnaðar í tengivirkjum
- Veita tæknilega ráðgjöf og stuðning við framkvæmda- og rekstrarverkefni
- Stuðla að stöðugum umbótum, nýsköpun og tæknilegri framþróun
- Byggja upp árangursdrifna menningu, starfsþróun og samvinnu innan teymisins
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af tengdri starfsemi og þekking á raforkukerfum er kostur
- Reynsla af stjórnun og þróun teyma
- Færni og frumkvæði í að skapa og leiða öflugt sérfræðiteymi
- Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að leiða samstarf þvert á starfssvið
- Hæfni til að styðja fólk til árangurs og byggja upp sterka liðsheild
- Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð hugsun í stjórnun starfsfólks og verkefna
Ef þú hefur áhuga á að leiða öflugt sérfræðiteymi og taka þátt í að móta framtíð flutningskerfis raforku á Íslandi viljum við gjarnan heyra frá þér
Landsnet býður upp á skemmtilegt vinnuumhverfi, spennandi verkefni, dásamlegt mötuneyti og aðstöðu til líkamsræktar. Hjá okkur eru góð tækifæri til starfsþróunar, frábærir vinnufélagar og fjölbreyttir styrkir.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem – [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 27. september.
Íslenska










